Jón Ársæll hitti klónið sitt 24. febrúar 2010 06:30 Vel fór á með sjónvarpsmanninum Jóni Ársæli Þórðarsyni og klóninu hans fyrir utan Útvarpshúsið í gær. Svo gott er gervi Pálma Gestssonar að varla má á milli sjá hver hinn raunverulegi Jón Ársæll er. Sjónvarpsmaðurinn góðkunni hafði mjög gaman af uppákomunni og hló að tilburðum Pálma.
Spaugstofan verður í sviðsljósinu í Sjálfstæðu fólki hjá Jóni Ársæli Þórðarsyni næsta sunnudag. Pálmi Gestsson brá sér í gervi Jóns í gær og mátti ekki á milli sjá hvor væri hvað. „Það var gaman að hitta Jón. Hann kom og spjallaði við okkur hvern í sínu lagi. Svo brá ég mér bara í hans gervi og hann hitti klónið af sér," segir Pálmi Gestsson. „Hann hafði mjög gaman af þessari uppákomu. Ég held hann hafi það yfirleitt enda engir alvöru menn nema það sé hægt að herma eftir þeim eitthvað." Pálmi hefur túlkað Jón Ársæl með reglulegu millibili í gegnum árin og gert það með miklum sóma eins og honum einum er lagið. Spurður hvort ekki hafi verið löngu kominn tími á að Spaugstofan væri tekin fyrir í Sjálfstæðu fólki kemur hik á Pálma: „Er það ekki að ofgera hlutunum ef við erum að þvælast á öðrum stöðvum." Fregnir um að Spaugstofan ætli að hætta í vor eru orðum auknar að sögn Pálma. „Þetta er ekkert öðruvísi en það hefur alltaf verið. Það hefur alltaf komið í ljós seint bæði af okkar hálfu og Útvarpsins hvort það væri tilefni til að halda áfram. Það hefur verið þannig í 21 ár," segir hann. Spurður hvort þeir félagar hafi ekki áhuga á að halda áfram segir Pálmi: „Við höfum verið að kasta því á milli okkar. Á meðan ástandið er svona og fólk vill horfa á okkur og við höfum gaman af þessu erum við alltaf til í að skoða það. En það er engin sáluhjálp fyrir okkur í sjálfu sér. Auðvitað skilur maður að Útvarpið er í kröggum eins og önnur fyrirtæki og það verður að skoða sín mál til að vita hvað það getur tekist á við." Nokkrir þættir eru eftir af Spaugstofunni á þessu vori. Síðasti þátturinn verður að öllum líkindum sýndur í lok apríl. freyr@frettabladid.is fagnaðarfundir Jón Ársæll og Pálmi Gestsson faðmast fyrir utan Útvarpshúsið. hermikráka Pálmi Gestsson hermir eftir Jóni Ársæli, sem hlær að tvífara sínum. tveir brosandi Jón Ársæll og Pálmi liggja skellihlæjandi í grasinu.
Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Í jólaskapi í júní Menning Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Lífið Fleiri fréttir Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Sjá meira