Innlent

Barnahús að íslenskri fyrirmynd opni um alla Evrópu

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu,
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, Mynd/Valgarður Gíslason

Sérfræðinganefnd á vegum Evrópusambandsins leggur til að þeim fyrirmælum verði beint til aðildarríkja sambandsins að þau opni barnahús að íslenskri fyrirmynd. Forstjóri Barnaverndarstofu segir að þetta sé mikið gleðiefni.

Barnahús tók til starfa hér á landi fyrir 12 árum á vegum Barnaverndarstofu. Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Barnaverndarnefndir bera ábyrgð á vinnslu slíkra mála og geta óskað eftir þjónustu Barnahúss.

Allt undir sama þaki

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að starfshópurinn hafi verið að störfum í um tvö ár og var hópnum ætlað að semja tillögur um barnvænt réttarkerfi í aðildarríkjum Evrópusambandsins. 12 sérfræðingar áttu sæti í hópnum, þar á meðal Bragi. Nefndin hélt sinn síðasta fund í vikunni sem leið.

„Þar eru ein tilmælin sem beint er til aðildarríkjanna að þau komi á fót barnahúsum þar sem að allir þættir rannsókna mála og þjónustu verði undir sama þaki með þátttöku lögreglu, ákæruvalds, barnaverndaryfirvalda, lækna og annarra stofnanna sem hlutverki gegna við meðferð slíkra brota," segir Bragi. Hann á von á því að ráðherranefndin afgreiði tillögur nefndarinnar formlega í nóvember.

Ánægjuleg tíðindi

Nú eru yfir 30 barnahús starfandi í Evrópu og eru þau öll á Norðurlöndunum. Fyrirmynd þeirra er íslenska Barnahúsið. Til stendur að fjölga slíkum húsum í Danmörku og þá verða fyrstu barnahúsin í Finnlandi og á Grænlandi opnuð á þessu ári.

„Þessi málaflokkur er ekki alltaf gleðilegur en þessi tilmæli eru okkur mikið gleðiefni," segir Bragi. „Það er ánægjulegt að okkar barnahús skuli vera svona afdráttarlaus fyrirmynd."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×