Lífið

Sandra Bullock valin kona ársins og Elin verðlaunuð

Sandra Bullock er kona ársins hjá lesendum glanstímaritisins People.
Sandra Bullock er kona ársins hjá lesendum glanstímaritisins People.
Bandaríska blaðið People hefur tekið saman lista yfir það besta á árinu. Sandra Bullock og Elin Nordegren eru í góðum félagsskap.

Sandra Bullock var valin kona ársins af lesendum People sem er eitt stærsta glanstímarit Bandaríkjanna. Árið var vissulega stormasamt hjá Bullock og það skiptust á skin og skúrir í lífi hennar. Hún hreppti Óskarinn fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Blind Side en komst skömmu síðar að því að eiginmaður hennar til fimm ára, Jesse James, hafði haldið ítrekað framhjá henni.

Hún sótti um skilnað og ættleiddi í kjölfarið stúlkubarnið Louis Bardo.

Elin er fyrirmynd ársins.
Lesendur People völdu einnig þann skilnað sem kom þeim mest í opna skjöldu. Og þar var efniviðurinn nægur. Hjónaband Davids Arquette og Courtney Cox þótti hins vegar traust og því voru flestir steinhissa á þeim sambandsslitum.

Þessi könnun var reyndar framkvæmd áður en Ryan Reynolds og Scarlett Johansson tilkynntu að þeirra hjónaband væri búið. Sú frétt hefur vakið heimsathygli.

Elin Nordegren var valin sem Fyrirmynd ársins, en hún þótti standast álagið sem varð við skilnað þeirra Tigers Woods af stakri prýði. Lesendum People fannst hún komast í gegnum óviðrið með reisn og nú spókar hún sig á háskólalóð í Flórída með suðurafrískum nemenda. Og á 100 milljónir dollara inni á bankabók.

Bret er baráttumaður ársins.
Kim Kardashian var valin viðskiptajöfur ársins en henni tókst það sem flestar bandarískar raunveruleikastjörnur dreymir um: að breyta ferli sínum í milljón dollara viðskiptaveldi.

Baráttumaður ársins reyndist síðan verða Bret Michaels, söngvari Poison, sem sigraðist á alvarlegu heilablóðfalli. „Ég vildi ekki að mín yrði minnst fyrir heilablóðfall, ég vill að mín verði minnst fyrir þrautseigju, ástríðu og ást mína á tónlist," sagði Brett á sínum tíma.

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.