Forgangur Ölfuss er fallinn úr gildi 6. maí 2010 04:00 Þorlákshöfn. Farið var of bratt í upphaflegar tímaáætlanir, sem gerðar voru í febrúar, og miðuðu við að samningur um orkusölu frá Hverahlíðarvirkjun til kísilverksmiðju í Þorlákshöfn lægi fyrir 1. maí, segir lögmaður Timminco, kanadísks fyrirtækis sem á í samstarfi við Íslendinga um byggingu slíkrar verksmiðju.
Orkuveita Reykjavíkur hefur hafnað ósk Ölfuss um að framlengja forgangsrétt verkefna í sveitarfélaginu að orku frá Hverahlíðarvirkjun. „Okkar forgangur rann út 1. maí,“ segir Birna Borg Sigurgeirsdóttir, forseti bæjarstjórnar Ölfuss. „Við leituðum eftir framlengingu en Orkuveitan vísaði því á bug.“ Áfram er þó unnið að hugmyndum um að fyrirtækið Timminco byggi kísilverksmiðju við Þorlákshöfn og knýi hana með orku frá Hverahlíðarvirkjun. Orkuveitan á nú bæði í viðræðum við Timminco og Norðurál um kaup á þeirri orku, að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa OR, sem segir stefnt að því að „klára mál Timminco í maí“. Gunnar Jónsson, lögmaður Thorsil, en það félag er í eigu Timminco og Stokks Energy og vinnur að undirbúningi kísilverksmiðjunnar, segir að fyrirtækin hafi enn áhuga á að reisa kísilverksmiðjuna. Áætlanir um að ljúka málinu fyrir 1. maí hafi verið óraunhæfar þótt tekist hafi að ljúka þeirri verkfræðivinnu sem stefnt var að fyrir þann tíma. Næstu skref gætu ráðist á stjórnarfundi Orkuveitunnar 12. maí þar sem fjallað verði um hugmyndir um framlengdan samningsramma. Gunnar staðfesti að samningsstaða kísilverksmiðjunnar væri veikari nú þegar Ölfus nýtur ekki lengur forgangs og álver Norðuráls í Helguvík knýr einnig á um aðgang að orku Hverahlíðarvirkjunar. „Það stendur til að halda áfram á fullu. Ég veit að hugur Orkuveitunnar stendur mjög til að þetta geti orðið,“ sagði Gunnar. „En hlutirnir hafa tekið lengri tíma en við vonuðum.“ Timminco hefur staðið höllum fæti fjárhagslega. Gengi þess á hlutabréfamarkaði í Kanada rýrnaði um þriðjung skömmu fyrir síðustu mánaðamót. Fyrr á árinu tilkynnti Timminco að það hefði hætt framleiðslu á kísilflögum vegna minnkandi sölu en mundi byrja aftur ef markaðsaðstæður batna. Unnið hefur verið að endurskipulagningu, meðal annars með breytingu skulda í hlutafé. Gunnar Jónsson segir að viðræður standi yfir við öflug fyrirtæki um kaup á framleiðslu væntanlegrar verksmiðju. Traustur sölusamningur sé ein forsenda þess að verksmiðjan geti risið. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Fleiri fréttir Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Sjá meira