Breyta lögum um húsnæðismál 4. maí 2010 18:12
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp Árna Páls Árnasonar, félags- og tryggingamálaráðherra um breytingar á lögum um húsnæðismál. Helstu breytingarnar felast í heimild til Íbúðalánasjóðs um að bjóða kaupleigurétt á íbúðum sem sjóðurinn hefur keypt á uppboði, nýju ákvæði um lánveitingar til húsnæðissamvinnufélaga til að styrkja starfsemi þeirra og víðtækari heimildum sjóðsins til að fjármagna stórfelldar breytingar á fjölbýlishúsum til að bæta aðgengi fyrir fatlaða. Þetta kemur fram á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Þar segir að með áformuðum breytingum verði Íbúðalánasjóði heimilt að bjóða til leigu íbúðir sem sjóðurinn hefur keypt á nauðungaruppboði með ákvæði um kauprétt leigjenda. Miðað er við að allir húsaleigusamningar Íbúðalánasjóðs verði með kaupréttarákvæði. Leigjendum verður ekki skylt að nýta sér kaupréttinn heldur ákveða þeir sjálfir hvort eða hvenær hann nýtir sér þennan rétt. Umsamin húsaleiga mun taka mið af markaðsleigu á viðkomandi stað.Húsnæðissamvinnufélög eflt Til að skapa fjölbreyttari húsnæðismöguleika fyrir einstaklinga og fjölskyldur verður starfsemi húsnæðissamvinnufélaga efld með auknum lánamöguleikum til bygginga eða kaupa á búsetuíbúðum. Í þessu felst meðal annars að húsnæðissamvinnufélögum verður auðveldað að endurfjármagna búsetuíbúðir þegar skipt er um búseturéttarhafa, að því er fram kemur á vef ráðuneytisins.Bæta aðgengi fatlaðra Þá verður Íbúðalánasjóði veittar tímabundnar heimildir til lánveitinga vegna endurbóta á húsnæði, meðal annars til þess að fyrirtæki og stofnanir geti aukið aðgengi fatlaðra að húsnæði sínu. Einnig eru ráðgerðar auknar heimildir sjóðsins til að fjármagna stórfelldar breytingar á fjölbýlishúsum, til dæmis vegna hönnunar og uppsetningar á lyftum þar sem þess er þörf. Með þessu er stefnt að því að auka frelsi og möguleika fólks með fötlun til að velja sér húsnæði. Ráðuneytið telur jafnframt að þessar aðgerðir verði jafnframt til þess að efla byggingariðnaðinn og bæta atvinnustig.
Mest lesið Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Gert að greiða hundruð milljóna fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Fleiri fréttir Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Sjá meira