Danir hugga Cheryl Cole 6. mars 2010 02:00 Danska þjóðin tók eflaust vel á móti Cheryl Cole þegar hún söng í danska X-Factornum í gærkvöldi.
Það voru danskir áhorfendur í danska X-Factornum sem voru þeir fyrstu til að sjá enska söngfuglinn Cheryl Cole koma opinberlega fram eftir að stoðirnar hrundu undan hjónabandi hennar og knattspyrnukappans Ashley Cole. Cheryl flúði Bretland eftir að breskir fjölmiðlar grófu upp ástarævintýri eiginmannsins með ókunnugum stúlkum. Nektarmyndir úr símum hans og dónaleg sms-skilaboð voru birt á forsíðum helstu dagblaðanna og að endingu ákvað Cheryl að binda enda á hjónabandið með stuttu smáskilaboði. Útsendari breska blaðsins Daily Mail var í Kastrup þegar Cheryl lenti í Danaveldi og hann greinir frá því á heimasíðu blaðsins að Cheryl hafi virkað útkeyrð, sirkusinn í kringum einkalíf þeirra hjóna hafi augljóslega tekið á hana. Hún hafi samt sem áður tekið þá ákvörðun að standa við sínar skuldbindingar og syngja í danska X-Factornum. Cheryl er feikilega vinsæl í heimalandi sínu en hefur ekki náð eyrum annars staðar í Evrópu og Ameríku. Hún og umboðsmaður hennar eru því í mikilli kynningarherferð um þessar tvær álfur til að koma henni á framfæri þar. Daily Mail greinir einnig frá því að Cheryl og Ashley ætli að setjast niður saman og ræða málin í Frakklandi en þar dvelur hinn smávaxni bakvörður Chelsea vegna meiðsla á ökkla. Ashley hefur lýst því yfir að allt þetta umrót hafi eyðilagt líf sitt en virðist þó eygja smá von um að þau nái aftur saman.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira