Ástríðan er enn til staðar í Hljómalind 2. mars 2010 06:00 Varkár Helena Stefánsdóttir, einn eigenda Kaffi Hljómalindar, segist vera með augun opin fyrir nýju húsnæði en vilji þó ekki taka hvaða tilboði sem er. Fréttablaðið/Stefán
Kaffi Hljómalind, sem þjónaði sem hálfgerð félagsmiðstöð fyrir fjölskyldufólk og ungmenni um árabil, hætti rekstri í október í fyrra. Ástæða þess var sú að Hljómalindarfólkið fékk ekki framlengdan leigusamninginn og missti því húsnæðið. Helena Stefánsdóttir, einn eigenda Kaffi Hljómalindar, segir hópinn vera með augun opin fyrir hentugu húsnæði fyrir reksturinn. Hún segir hópinn jafnframt vera að leggja drög að reglugerð fyrir nýtt samvinnufélag sem mun reka kaffihúsið í framtíðinni. „Það eru alls konar plön í gangi. Hljómalind var eignarhaldsfyrirtæki en var rekið sem samvinnufélag, nú ætlum við að taka þetta alla leið og hafa þetta löglega sem samvinnufélag. Við viljum hafa fjölbreyttari rekstur þegar við opnum aftur því hópurinn sem að þessu stendur er svo fjölbreyttur og áhugamálin mörg,“ segir Helena. Aðspurð segir hún samvinnufélög sem þetta hafa ákveðinn tilgang og í þessu tilfelli sé það að hafa uppbyggileg og skapandi áhrif á umhverfið. Hún segir hópinn ekki tilbúinn til að leigja hvaða húsnæði sem er því þau vilji hafa svigrúm fyrir aukinni starfsemi líkt og námskeiðahald og verkstæði. „Við höfum fengið margar fyrirspurnir frá gömlum viðskiptavinum sem vilja vita hvort Hljómalind verði ekki örugglega opnuð aftur. Það er gott að finna fyrir slíkum áhuga og stuðningi. Við erum rosalega varkár í allri ákvarðanatöku út af fyrri reynslu, en ástríðan er enn til staðar,“ segir Helena að lokum. - sm
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira