Tækjaskortur helsti veikleiki Landspítala 7. maí 2010 05:45 Fullbúinn kostar tækjabúnaður til hjartaþræðinga hátt í 100 milljónir króna. Þjóðin safnaði 44 milljónum árið 2009 til kaupa á fullkomnum tækjabúnaði til hjartaþræðinga. Biðlistar gufuðu nánast upp í kjölfarið. fréttablaðið/anton „
Tækjamálin eru í dag helsti veikleiki Landspítalans. Árum saman hefur smámunum verið ætlað til tækjakaupa og endurnýjunar miðað við umfang starfseminnar. Ég tel að innan spítalans sé samstaða um þetta sjónarmið,“ segir Guðmundur Þorgeirsson, prófessor í lyflækningum við Háskóla Íslands og fyrrverandi yfirlæknir á hjartadeild LSH. „Þetta er búið að vera vandamál lengi og verður að viðurkennast að komið hafa tímar þar sem við höfum verið með öndina í hálsinum yfir því hvort gamalt tæki endist þangað til það tekst að krafla saman peningum í endurnýjun,“ segir Guðmundur jafnframt. Á fjárlögum ársins 2010 eru 237 milljónir, auk framlaga til viðhalds og nýframkvæmda, veittar til tækjakaupa en þyrfti að vera milljarður á ári til eðlilegrar endurnýjunar. Um sömu krónutölu er að ræða og undanfarin ár. Öll tæki eru keypt erlendis og því hefur gengisþróun séð til þess að upphæðin hrekkur varla til kaupa á bráðanauðsynjum. Framlög til tækjakaupa og endurnýjunar hjá sambærilegum háskólasjúkrahúsum við LSH á Norðurlöndunum eru þrjú til fjögur prósent af veltu. Það jafngildir 1,2 til 1,6 milljörðum króna í rekstri LSH. Gísli Georgsson, deildarstjóri á heilbrigðis-og upplýsingatæknideild LSH, hélt nýlega erindi þar sem kom fram að tækjaeign LSH er um tíu milljarðar að núvirði. Ríflega 600 milljónir þarf árlega til að halda meðalaldri tækja í horfinu, sem er sjö til átta ár. Aðrar 300 milljónir þarf vegna nýrrar tækni, til dæmis kaupa á hugbúnaði. Í erindi hans kom fram að 6,5 milljörðum hefur verið varið til kaupa á lækningatækjum á síðustu þrem áratugum, eða rúmlega 200 milljónum að jafnaði á ári. Guðmundur segir að gjafafé hafi bjargað miklu á undanförnum árum. Jónínusjóðurinn hafi til dæmis gegnt meginhlutverki við að endurnýja hjartaþræðingartæki spítalans en Jónína Gísladóttir sem nú er látin gaf stofnféð í þann sjóð. „Sambærileg dæmi eru mýmörg og ef ekki kæmu til framlög þessara sjóða, þá veit ég ekki hvar við stæðum,“ segir Guðmundur. Hann segir að mannafli, skipulag þjónustu, rannsóknir, kennsla og jafnvel húsakosturinn, sem sé dreifður og óhagkvæmur, geri LSH að þeirri öflugu stofnun sem menn þekki. Það sé því úr takti að kaup og endurnýjun á tækjakosti spítalans sé háð þeim annmörkum sem raun ber vitni. svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Sjá meira