Spurningaljónið úr Garðabæ 26. mars 2010 07:00 Stjarna í spurningakeppnum. Elías Karl Guðmundsson keppir bæði í úrslitum Gettu betur og Útsvars. Félagar hans úr MR, þeir Halldór Kristján og Ólafur Hafsteinn, gægjast út um glugga menntaskólans og fylgjast með sínum manni.Fréttablaðið/Pjetur „
Þetta er bara mjög gaman,“ segir Elías Karl Guðmundsson sem vakið hefur mikla athygli fyrir framgöngu sína í spurningakeppnum í sjónvarpi undanfarið. Elías komst í úrslit Útsvars fyrir viku sem liðsmaður Garðabæjar en hann var þá þegar kominn í úrslit Gettu betur með framhaldsskóla sínum, MR. Það skýrist í kvöld hverjir verða mótherjar Garðabæjar-liðsins en þá keppa lið Reykjavíkur og Reykjanesbæjar. Á morgun kemur hins vegar í ljós hvort það verður MR eða erkifjendur þeirra úr Verzló sem hreppa hljóðnemann fræga í þessari sívinsælu spurningakeppni framhaldsskólanna. Elías segir að áhuginn á spurningakeppnum hafi kviknað snemma hjá sér. „Já, þetta kemur alveg aftan úr æsku, ég held að ég hafi verið fimm ára þegar ég varð fyrst var við þennan áhuga,“ segir Elías en áréttar þó að fjölskyldan hafi ekki spilað mikið af spurningaspilum. Enda yrði væntanlega um ójafnan leik að ræða um þessar mundir. Elías segir spurningakeppnirnar taka töluverðan tíma frá hefðbundnu námi í MR en hann reyni þó alltaf að sinna því eins og hann getur. Hvað sérsviðið varðar segir Elías að það séu bara áhugamálin, íþróttir og landafræði, en mikla athygli vakti í einum Útsvars-þættinum þar sem Elías þuldi upp helstu eyðimerkur jarðkringlunnar. Spurningakeppnisstjarnan segir það tvennt ólíkt að taka þátt í Útsvari og Gettu betur. „Andrúmsloftið er miklu afslappaðra í Útsvari, það er meiri fiðringur í maganum fyrir Gettu betur,“ útskýrir hann en bætir því þó við að liðsfélagi sinn í Garðabæjarliðinu, Vilhjálmur Bjarnason, taki Útsvarið engum vettlingatökum og haldi liðsmönnum á tánum. „Nei, hann er mjög kröfuharður, er með svakalegt keppnisskap og leyfir ekkert rugl.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira