Lífið

Forfallinn Burberry aðdáandi

Sarah Jessica Parker. MYND/Cover Media
Sarah Jessica Parker. MYND/Cover Media

Sex and the City stjarnan, Sarah Jessica Parker, ásamt Mario Testino og Serenu Williams sátu í gær saman á fremsta bekk á vor- og sumartískusýningu Burberry fataframleiðandans á tískuvikunni í London.

Sarah, sem er forfallinn aðdáandi breska fatamerkisins Burberry, mætti í brúnum aðsniðnum leðurjakka eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

„Burberry fólkið var svo almennilegt að bjóða mér hingað en það hefur verið gjafmilt í gegnum tíðina. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef tíma til að mæta á sýningu hjá þeim því það er nóg að gera hjá mér bæði hvað varðar fjölskylduna og vinnuna," sagði Sarah.

Hér má sjá Burberry tískusýninguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.