Biggibix býður fólki í ferðalag 24. apríl 2010 04:15 Birgir Örn Sigurjónsson, eða Biggibix, hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu, Set Me On Fire. Mynd/Baldur Pan
Ísfirski tónlistarmaðurinn Biggibix hefur sent frá sér sína fyrstu sólóplötu sem nefnist Set Me On Fire. Biggi var áður í hljómsveitinni BMX sem var nokkuð dugleg á ballmarkaðinum en eftir að hún lagði upp laupana ákvað hann að hefja sólóferil. Þar er hugljúft popp og rokk í fyrirrúmi. „Ég hef alltaf verið rosalega sjálfstæður í tónlistarbransanum og átt erfitt með að vinna með öðrum tónlistarmönnum. Þannig að það lá svolítið fyrir að hefja sólóferil því það hefur alltaf staðið til að gefa út eigið efni,“ segir Biggi sem tekur þó fram að hann sé ekkert erfiður í samstarfi, heldur henti það honum einfaldlega betur að vera einn á báti. Upptökur á plötunni hófust í byrjun síðasta árs en babb kom í bátinn þegar harði diskurinn í hljóðverinu hrundi rétt áður en átti að ganga frá plötunni. „Við tókum plötuna upp aftur, bættum við lagi og löguðum það sem þurfti að laga. Þetta var bara lán í óláni,“ segir Biggi. Set Me On Fire er persónuleg plata sem fjallar að miklu leyti um samskipti kynjanna. „Ég er ekkert að setja mig í einhverjar draumkenndar aðstæður og syngja um eldgos og álfa. Ég ákvað frá byrjun að platan skyldi vera ferðalag sem þú hlustar á frá byrjun til enda. Mér finnst skemmtilegra að gera þannig plötu,“ segir Biggi, sem starfar sem grafískur hönnuður á Ísafirði og er í slökkviliði bæjarins. Heimasíða Bigga er Biggibix.com. - fb
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira