Guðlaugur ætlar að upplýsa hverjir létu hann fá 25 milljónir 4. maí 2010 20:12 Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi heilbrigðisráðherra. „Ég mun birta það mjög fljótlega,“ sagði Guðlaugur. Mynd/Valgarður Gíslason
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, ætlar að upplýsa hverjir styrktu hann í prófkjöri þegar hann þáði 24,8 milljónir króna í styrki fyrir kosningarnar 2007. Enginn þáði hærri styrki samkvæmt upplýsingum Ríkisendurskoðunar. Guðlaugur hefur hingað til ekki viljað gefa upp hverjir veittu þessa styrki. Undanfarnar vikur hefur verið eftir afsögn Guðlaugs og mótmælt við heimili hans. Í Kastljósi í kvöld sagðist Guðlaugur hafa þegið umrædda styrki á grundvelli nafnleyndar. „Ég hef hins vegar ákveðið að fylgja því eftir og kanna það hjá öllum þeim aðilum, sem voru um 40 talsins, sem styrktu þetta prófkjör og hvort þeir séu fáanlegir til að gefa upp sín nöfn. Ég mun birta það mjög fljótlega," sagði Guðlaugur og bætti við að hann ætli í framtíðinni ekki að þiggja nafnlausa styrki. Þá sagðist Guðlaugur hafa farið eftir ströngustu reglum. Guðlaugur sagðist telja að hann njóti trausts til að sitja áfram sem þingmaður. Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í gær hefur hann ekki hugleitt að segja af sér þingmennsku þrátt fyrir háværa kröfu um að þeir sem þáðu hæstu prófkjörsstyrkina víki af Alþingi.Tilviljun Í viðtalinu í Kastljósi var Guðlaugur spurður út í umtalaða veiðiferð í Miðfjarðará í ágúst 2006. Þar var hann ásamt þremur aðalleikendum í REI-málinu svokallaða ásamt fjármálastjóra Baugs. Þetta voru þeir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrrverandi borgarstjóri, Haukur Leósson fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar og Björn Ingi Hrafnsson fyrrverandi varaformaður stjórnar Orkuveitunnar og REI. Fjármálastjóri Baugs á þessum tíma var Stefán Hilmarsson núverandi fjármálastjóri 365. Rúmlega mánuði eftir veiðiferðina komu upp á yfirborðið hugmyndir um að sameina REI og GGE en síðarnefnda félagið var að langstærstum hluta í eigu Baugs í gegn um eignarhlut sinn í FL Group. „Já, að sjálfsögðu er það tilviljun. Ég kom þarna á síðustu mínútu og þessi mál voru ekki rædd með nokkrum einasta hætti," sagði Guðlaugur þegar hann var spurður út í málið í kvöld.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Fleiri fréttir Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Sjá meira