Sjónvarpsveturinn skýrist 1. september 2010 00:01 Pétur Jóhann mætir í Hlemmavideó.
Haustdagskrá sjónvarpsstöðvanna er smám saman að skýrast. Spaugstofan er gengin til liðs við Stöð 2 en tilkynnt hefur verið um fimm aðrar leiknar þáttaraðir. Stöð 2 verður sem fyrr með flestar leiknu þáttaraðirnar. Sjónvarpsstöðin stendur auðvitað frammi fyrir þeim „vanda" að engin vaktar-sería verður í ár en vinsældir þeirra eru einsdæmi í íslenskri sjónvarpssögu. Spaugstofan var flokkuð sem leikið efni hjá RÚV og fellur eflaust undir þann flokk hjá Stöð 2 en auk hennar má nefna Steindann okkar. Tökur á þeim þætti eiga að hefjast á haustmánuðum en þættirnir nuta mikilla vinsælda á síðasta tímabili. Frímanni Gunnarssyni er gamanmál. Þá má ekki gleyma Mér er gamanmál, nýrri sjónvarpsþáttaröð með Frímanni Gunnarssyni þar sem hann heimsækir grínista á öllum Norðurlöndunum og í Englandi en Gunnar Hansson verður auðvitað í hlutverki ólíkindatólsins. Pressan II er einnig í farvatninu en fyrri þáttaröðin þótti heppnast með eindæmum vel. Sigurjón Kjartansson situr sveittur við handritsgerðina en líklegt verður að teljast að stór hluti leikhópsins úr fyrstu þáttaröðinni snúi aftur. Tökur eiga að hefjast í kringum áramótin. Steindi mætir aftur á Stöð 2. Ekkert lát verður heldur á hefðbundnari leiknum þáttaröðum hjá Stöð 2. Hlemma Vídeó er ný þáttaröð með Pétri Jóhanni Sigfússyni, Ágústu Evu Erlendsdóttur og Vigni Rafni Valþórssyni í aðalhlutverki. Tökur á þeim þáttum eiga að hefjast á allra næstu dögum en hún segir frá ungum manni sem erfir myndbandaleigu. Hann sjálfur gengur þó með þann draum í maganum að verða einkaspæjari. Handritsgerðin er í höndum Sigurjóns Kjartanssonar, Maríu Reyndal, Ara Eldjárn, Hugleiks Dagssonar og Péturs Jóhanns en leikstjóri er Styrmir Sigurðsson. Friðrik Þór mætir með Tíma nornarinnar. Skjár einn hyggst endurvekja leikið efni hjá sér eftir nokkurt hlé. Baldvin Z framleiðir nýja gamanþáttaröð undir heitinu Hæ Gosi sem er með bræðrunum Kjartani og Árna Pétri Guðjónssonum í aðalhlutverkum. Þættirnir voru teknir upp á Akureyri. Langt er síðan Skjár einn var með leikið efni, eflaust var það Venni Páer sem hélt þeim fána á lofti, en þessi nýjung stöðvarinnar er mikið fagnaðaraefni. Pressa II er á leiðinni. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær mun RÚV sýna nýja sjónvarpsþáttaröð úr smiðju Friðriks Þórs Friðrikssonar sem heitir Tími nornarinnar og er byggð á samnefndri bók Árna Þórarinssonar. Ekki liggur fyrir hvort aðrar leiknar þáttaraðir eru í undirbúningi en Skaupið verður að sjálfsögðu á sínum stað í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Fleiri fréttir Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Sjá meira