Jordan á meðal áhorfenda Gunnars 1. september 2010 16:30 Bardagakappinn Gunnar Nelson keppir í Birmingham 25. september. Fréttablaðið/Valli „
Iðulega á svona bardögum þá er troðfullt af einhverju frægu fólki. Það væri vel við hæfi ef Jordan myndi fylgjast með kærastanum sínum," segir bardagakappinn Gunnar Nelson. Hann mætir Bretanum Eugene Fadiora í Birmingham 25. september í blönduðum bardagalistum. Á eftir þeim etja kappi þeir Tom Watson og Alex Reid, eiginmaður glamúrgellunnar Jordan, í aðalbardaga kvöldins. Búast má við mikilli fjölmiðlaumfjöllun í Bretlandi fyrir bardagann og Gunnar býst við fjölda þekktra andlita í áhorfendaskaranum, þar á meðal Jordan. Eiginmaður Jordan keppir sama kvöld og Gunnar. Hún og Reid hafa verið áberandi á síðum breskra götublaða undanfarin ár. Jordan er þekktust fyrir fyrirsætustörf sín og Reid vakti athygli þegar hann sigraði í raunveruleikaþættinum Celebrity Big Brother. Hann er einnig þekktur fyrir að kalla sig Roxanne og klæða sig í kvenmannsföt. Gunnar ætlar að fylgjast með bardaga Reids og Watsons en þangað til mun hann einbeita sér að eigin bardaga. Mótherjinn Fadiora hefur barist tíu sinnum og alltaf unnið og því þarf íslenski víkingurinn að taka á öllu sem hann á ætli hann að bera sigur úr býtum. Gunnar hefur gott sjálfstraust um þessar mundir því nýlega vann hann Danny Mitchell eftir tæplega þriggja mínútna bardaga. Mitchell þessi hafði fyrir viðureignina einungis tapað einu sinni á ferlinum og þá fyrir Fadiora. Gunnar á von á skemmtilegum bardaga og er hvergi banginn, enda í hörkuformi um þessar mundir. „Maður stefnir á að gera líkt og áður og reyna að klára þetta örugglega." - fb
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Fleiri fréttir Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Sjá meira