The Hurt Locker spáð sigri 4. mars 2010 04:00 Kvöldið hennar Bigelow Flestir Óskarsspekingar í Bandaríkjunum spá því að sunnudagskvöldið verði kvöld Kathryn Bigelow. Mynd hennar, The Hurt Locker, verði valin best og hún sjálf hljóti styttuna sem besti leikstjórinn, fyrst bandarískra kvenna. James Cameron og Avatar-ævintýrið fari þó ekki slypp og snauð heim því ævintýramyndin eigi eftir að sópa til sín tæknilegum verðlaunum.
Óskarsverðlaunin verða afhent á sunnudaginn í Kodak-höllinni að viðstöddum öllum skærustu stjörnum Hollywood. Óskars-sérfræðingar spá The Hurt Locker sigri og að engin ein mynd muni standa upp úr með gríðarlegan fjölda styttna. Óskarinn eru frægustu kvikmyndaverðlaun heims. Á því leikur enginn vafi. Milljónir manna fylgjast með útsendingu frá afhendingu þeirra en það eru gömlu brýnin Steve Martin og Alec Baldwin sem eru kynnar kvöldsins. Gríðarleg leynd hvílir yfir úrslitum Óskarsins. Hið virta fréttatímarit Newsweek greinir frá því að aðeins fjórir aðilar telji atkvæðin undir vökulu auga tveggja formanna kjörstjórnar. Hverjum og einum af þessum fjórum er úthlutað atkvæðaseðlum með því móti að þeir geta aldrei giskað á úrslitin. Atkvæðatalningin fer fram í lokuðu herbergi með aðeins einni hurð og engum gluggum. Þessir tveir formenn kjörstjórnar taka síðan saman talninguna, skrá hjá sér úrslitin og koma þeim fyrir í sérstökum öryggisskáp. Formennirnir tveir eru því þeir einu sem vita hverjir hreppa gullstyttuna eftirsóttu. Hjónaslagur LONDON, ENGLAND - FEBRUARY 21: Director Kathryn Bigelow poses with the award for Best Director for the film, The Hurt Locker, during Orange British Academy Film Awards 2010 at the Royal Opera House on February 21, 2010 in London, England. (Photo by Ian Gavan/Getty Images) Kathryn Bigelow leikstjóri Keppnin um Óskarinn verður eilítið persónulegri en hún hefur verið hingað til. Þau James Cameron og Kathryn Bigelow voru eitt sinn gift en þau eru talin sigurstranglegust með myndirnar sínar Avatar og The Hurt Locker. Spekingar vestanhafs eru einróma í sinni niðurstöðu um hvaða mynd verði valin best. Tariq Khan hjá Fox-sjónvarpsstöðinni hefur lengi stært sig af því að vera spámannlega vaxinn og hann telur nánast öruggt að The Hurt Locker fari heim með Óskar frænda. Í sama streng tekur Lane Brown hjá New York Magazine. The Hurt Locker muni standa uppi sem sigurvegari í þessum eftirsótta flokki. Brown er einnig sannfærð um að Bigelow muni hafa sigur yfir fyrrverandi manninum sínum og verði útnefnd besti leikstjóri ársins. Til gamans má geta þess að fjórir Íslendingar hafa unnið náið með Bigelow; Sigurjón Sighvatsson framleiddi kvikmyndina K-19: The Widowmaker þar sem Ingvar E. Sigurðsson lék lítið hlutverk og svo gerði Karl Júlíusson auðvitað leikmyndina fyrir The Hurt Locker en eiginkona Karls, Áslaug Konráðsdóttir, var skrifta myndarinnar. Leikaraverðlaun óljósAVTR-228 Neytiri (Zoë Saldana) and Jake (Sam Worthington) make final preparations for an epic battle that will decide the fate of an entire world. AvatarEn Óskarsspekingarnir eru ekki á einu máli um leikaraverðlaunin, að undanskildum einum flokki: besti karlleikari í aukahlutverki. Þar er Christoph Waltz spáð sigri fyrir einstakan leik í Inglourious Basterds. Áðurnefnd Brown hjá New York Magazine er viss um að Sandra Bullock hafi sigur og verði útnefnd besta leikkona ársins fyrir The Blind Side og hafi þannig sigur yfir þungavigtarleikkonum á borð við Helen Mirren og Meryl Streep. Aðrir spá því að Gabourey Sidibe, aðalleikkonan í Precious, muni standa uppi með pálmann í höndunum enda má ekki gleyma því að framleiðandi þeirrar myndar er sjálf Oprah Winfrey. Og völd hennar í Hollywood skyldi ekki vanmeta. Brown spáir því að Mo’Nique úr áðunefndri Precious verði valin besta leikkona í aukahlutverki. Vandasamasti flokkurinn er þó án nokkurs vafa besti karlleikarinn. Einhverjir kynnu að hugsa sem svo að Jeremy Renner ætti varla möguleika en miðað við þá umfjöllun sem The Hurt Locker hefur fengið skyldi enginn útiloka þessa nýju stjörnu (ekki má gleyma því að Renner lék aðalhlutverkið í A Little Trip to Heaven eftir Baltasar Kormák). En sá sem þykir líklegastur til að hreppa hnossið er Jeff Bridges fyrir leik sinn í Crazy Heart. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira