Hjálmar: Engin slagsíða gegn konum í BÍ 9. maí 2010 15:39 Hjálmar Jónsson, formaður BÍ.
Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands gerir athugasemdir við ályktun Félags fjölmiðlakvenna sem sagt var frá hér á Vísi í gær. Í ályktuninni sagði að konur væru í minnihluta í stjórnum og nefndum Blaðamannafélagsins. Í pistli á heimasíðu BÍ segir Hjálmar að það verði ekki undan því vikist að gera athugasemdir við fullyrðingar í ályktuninni. Hann segir rangt að konur séu á varamannabekk í nefndum félagsins. „Svo dæmi séu tekin þá sitja í stjórn styrktarsjóðs BÍ sex manns, fjórar konur og tveir karlmenn,. Þrír eru þar í aðalstjórn, tvær konur og einn karlmaður og þrír í varastjórn, tvær konur og einn karlmaður. Í verðlaunanefnd eru fimm manns, þrjár konur og tveir karlmenn. Í menningar- og orlofshúsasjóði og endurmenntunar- og háskóalsjóði sitja þrír í stjórn, tveir karlmenn og ein kona og er konan formaður stjórnar, eins og verið hefur síðastliðin rúm 10 ár," segir Hjálmar meðal annars. Hjálmar segir það góðra gjalda vert að ræða kynjaskiptingu í félaginu. „Það verður þó að gæta sanngirni og ég held að Blaðamannafélagið verði ekki sakað um kynjaslagsíðu gagnvart konum undanfarin ár. Staðreyndirnar tala sínu máli. Frá árinu 2006 eða síðustu fjögur árin hafa fimm af sjö aðalstjórnarsætum í BÍ verið skipuð konum og tvö karlmönnum. Konur hafa gegnt báðum embættum formanns og varaformanns sama tímabil og í fjögurra sæta framkvæmdastjórn félagsins hafa setið þrjár konur og einn karlmaður," segir Hjálmar. Hann bendir ennfremur á að tveir þriðju hlutar félagsmanna BÍ eru karlar og þriðjungur eru konur og segir Hjálmar að það kynjahlutfall hafi haldist mjög svipað undanfarin ár.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira