Lífið

Áhugi karla á kynlífi minnkar um fertugt

Tobba Marinós vísar oft í Tracey Cox í bókum sínum og var því ánægð með áritað eintak frá kynlífssérfræðingnum.fréttablaðið/anton
Tobba Marinós vísar oft í Tracey Cox í bókum sínum og var því ánægð með áritað eintak frá kynlífssérfræðingnum.fréttablaðið/anton

Kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox er stödd hér á landi til að kynna nýjustu bók sína, Lostaleiki. Daðurdrottningin Tobba Marinós hefur lengi haft mætur á Tracey og því ákvað Fréttablaðið að sameina þessar tvær drottningar og ræddi við þær um karlmenn, kynlíf og íslenska deitmenningu.

„Það er svo mikil mýta að allar konur geti fengið fullnægingu einungis við samfarir. Það er í rauninni bara fáránlega lágt hlutfall sem nær því," segir kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox, sem er hér á landi að kynna bók sína Lostaleiki. „Konan þarf að kunna á sig og geta sagt rekkjunauti sínum hvaða svæði þurfi að örva og hvað hann eigi að gera. Flestar konur virðast samt ekki geta talað um þetta og því er ekkert við karlmennina að sakast. Þeir þurfa bara leiðbeiningar." Tracey segir líka aðra algenga mýtu vera þá að karlmenn vilji stöðugt kynlíf.

„Það er svo mikið bull. Þegar karlmenn eru í kringum fertugt minnkar áhuginn á kynlífinu til muna. En samt fara þeir á barinn með strákunum og tala endalaust um kynlíf."

Ömurleg deitmenning

Þegar talið berst að íslensku deitmenningunni er ljóst að margt þarf að laga samkvæmt daðurdrottningunni Tobbu Marinós. „Hér er bara farið á rúntinn og Laugavegurinn keyrður aftur og aftur," segir Tobba, en bætir við að einstaka strákur leggi það á sig að bjóða í bíó. Tracey verður gjörsamlega orðlaus og spyr hvers vegna ekki sé hægt að bjóða í hádegismat eða fara út og fá sér drykk. „Ástæðan er sú að íslenskum strákum finnst þeir vera að reyna of mikið með því að bjóða stelpunni eitthvað fínt," segir Tobba.

Hún segir líka marga stráka vilja sleppa deitinu. „Þeir tékka kannski á stelpunni um kvöldið og athuga hvort hún sé að djamma. Svo sendir hann henni SMS seinna um nóttina og vill þá hitta hana. Svo vaknar stelpan bara um morguninn heima hjá honum og allt í rugli," segir Tobba og bætir við að ef strákurinn hafi einhvern áhuga á stelpunni yfirleitt geti hann bara fundið eitthvað almennilegt fyrir þau að gera.

Regla um síðasta söludag

Tracey segir konur oft búa sér til óraunhæfar væntingar þegar komi að karlmönnum. „Konur eru mjög duglegar við að búa til tálsýn af því sem er fyrir framan þær. Þær vonast til að maðurinn geti orðið eitthvað sem hann er bara alls ekki. Svo verða þær fyrir vonbrigðum þegar lengra er komið í sambandinu." Tobbu finnst líka fáránlegt að vinkonur geti ekki farið í sama gaurinn með áralöngu millibili. „Mér finnst að það ætti að vera regla hérna í íslensku samfélagi sem segir til um að þó svo að einhver vinkona þín hafi deitað gaur fyrir tíu árum megir þú fara í hann. Það hlýtur bara að vera einhver „síðasti söludagur"."

En hvað eiga íslenskar stelpur þá að gera til að koma í veg fyrir stefnumótaklúður? „Stelpur eiga að vera duglegri að segja „nei" og láta ekki bjóða sér á svona asnaleg deit," segir Tobba og Tracey er henni fullkomlega sammála. „Þið getið allavega byrjað á því að hætta þessum fáránlegu rúntum," segir hún og hlær.

Aldrei við Íslending kennd

Þegar Tracey kom til landsins fyrir sex árum voru uppi sögusagnir um að hún ætti vingott við íslenskan mann. Er eitthvað hæft í þeim orðrómi? „Nei, almáttugur. Þessi maður hitti mig í miðbænum og spurði mig hvort mig langaði að setjast inn á einhvern veitingastað og fá mér að borða. Þóra, bókaútgefandinn minn, var með mér og þar af leiðandi gerði ég mér enga grein fyrir því að þetta væri stefnumót. Þegar við vorum búin að borða rölti hann með mér að hótelinu og spurði hvort hann mætti koma upp, en ég náttúrulega neitaði því," segir Tracey, sem hefur því aldrei verið við íslenskan karlmann kennd. „Íslenskir karlmenn eru gullfallegir en ég er ekki alveg á lausu núna," segir Tracey og gerir því út um allar vonir einhleypu íslensku karlmannanna.

kristjana@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.