Fjórða Skjaldborgarhátíðin tilbúin Tinni Sveinsson skrifar 12. maí 2010 16:45
Aðstandendur heimildarmyndahátíðarinnar Skjaldborg eru búnir að velja um þrjátíu nýjar íslenskar heimildarmyndir til sýningar á hátíðinni. Eins og síðustu ár fer hún fram á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina, 21. til 24. maí. Sérstakur heiðursgestur hátíðarinnar er færeyski leikstjórinn Katrin Ottarsdottir og verða nokkrar myndir eftir hana einnig sýndar. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildarmyndin síðan valin af áhorfendum en meðal sigurvegara síðustu ára eru Konur á rauðum sokkum og Kjötborg. Fyrir utan hefðbundna bíódagskrá verður einnig fjölmargt annað fyrir gesti að aðhafast enda hefur Patreksfjörður upp á margt að bjóða. Má þar nefna sjóstangaveiði, sprúðlandi sjóskíði, reiðhjólaleigu, lokkandi sveitamarkað, girnilega fiskiveislu og geggjað sveitaball í lok hátíðar. Á hátíðinni í fyrra voru frumsýndar um 35 íslenskar heimildamyndir. Hátíðin hlaut mikið lof bæði kvikmyndagerðarfólks og annarra gesta og var tilnefnd til Eyrarrósarinnar í kjölfarið.Úr myndinni Garðarshólmi.„En á sama tíma og gróska hefur aldrei verið meiri í heimildarmyndagerð hér á landi hefur reynst erfitt að fá heimildarmyndir teknar til sýninga í kvikmyndahúsum og sjónvarpi. Skjaldborg sýnir því myndir sem annars kæmu varla fyrir augu almennings og ber jafna virðingu fyrir hinu smáa, stóra, skrýtna og fokdýra," segir í tilkynningu frá aðstandendum. Myndirnar á Skjaldborg eru bæði örstuttar og upp í fulla lengd og eru efnistökin fjölbreytt. Hér eru nokkur dæmi:Liljur vallarins eftir Þorstein Jónsson tekur fyrir stóru spurningarnar, tilganginn, dyggðirnar og sjálfan Guð í 200 manna sveitasamfélagi í skjóli Esjunnar.Útrás eldri borgara eftir Lýð Árnason og Jóakim Reynisson fylgir tveimur eldri borgurum til Kína þar sem þeir freista þess að hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd.Meinvill í myrkrunum lá eftir Frosta Jón Runólfsson fjallar um sjálfskipaðan róna sem ráfar um hverfisgötur lífsins með rauðvínsflösku í hönd.Súðbyrðingur eftir Ásdísi Thoroddsen segir frá fjórum mönnum sem ákveða að endursmíða fúnaða staðarskektu og skoðar þróun súðbyrðingsins á Norðurlöndum.Garðarshólmi - út í náttmyrkrið eftir Þorfinn Guðnason er grátbrosleg mynd um hamfarir íslensku þjóðarinnar og ljós í myrkrinu.Heiðursgesturinn Katrin mundar tökuvélina.Fjölmargar forvitninlegar myndir til viðbótar verða sýndar og segja aðstandendur dagskrána aldrei betri. Af öðrum myndum má nefna nýjar myndir eftir Pál Steingrímsson og Felix Bergsson auk þess sem sérstök viðhafnarsýning verður á gullmolanum Björgunarafrekið við Látrabjarg. Að venju verður sýnt úr heimildamyndum sem eru í vinnslu og spjallað við leikstjóra þeirra - til dæmis Beyond strength eftir Baldvin Z sem fjallar um hinn dularfulla Reynir sterka. Nánari upplýsingar og dagskránna í heild sinni má nálgast hér á heimasíðu Skjaldborgar.
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Robbie Williams einhverfur Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Lífið samstarf Fleiri fréttir Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Sjá meira