Lífið

Claudia á von á stelpu

Claudia Schiffer.
Claudia Schiffer.

Þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer á nú von á sínu þriðja barni með kvikmyndaframleiðandanum Matthew Vaughn. Hún kom fram í sjónvarpsþætti í Þýskalandi í gær þar sem hún sagði frá því að í þetta sinn væri stelpa á leiðinni.

Fyrir eiga hjónin son og dóttur. Í viðtalinu kom einnig fram að á meðgöngunni hafi Claudia fengið æði fyrir pilsner og drekki hann nú í lítravís á hverjum degi.

Hún segist einnig glíma við önnur vandamál en flestar konur þegar kemur að því að koma sér í form eftir fæðingu. Á meðan flestar konur berjast við aukakílóin segist Claudia þurfa að hafa sig alla við til að halda sér í kjörþing.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.