Pappírsflóð tefur The Charlies 30. mars 2010 08:00 Alma, Steinunn Camilla og Klara hafa verið á kafi í pappír að undanförnu. „
Þetta er allt að skýrast, við bindum núna vonir við að geta farið út í maí,“ segir Alma Guðmundsdóttir, einn liðsmanna stúlknasveitarinnar The Charlies. Eins og Fréttablaðið greindi frá í nóvember á síðasta ári skrifuðu stúlkurnar undir samning við plötufyrirtækið Hollywood Records sem tilheyrir Disney-samsteypunni en það hefur á sínum snærum stórstjörnur á borð við Miley Cyrus og Jonas Brothers. Upphaflega stóð til að tríóið færi út í janúar en síðan tók við mikið pappírsflóð, eitthvað sem þær Alma, Steinunn Camilla og Klara bjuggust hreinlega ekki við að væri svona gríðarlegt. „Maður þarf að útskýra í þaula hvað maður er að fara að gera allan þennan tíma og þetta tók bara miklu lengri tíma en við bjuggumst við. Núna erum við eiginlega bara að bíða eftir því hvort við fáum vegabréfsáritun í eitt eða þrjú ár,“ segir Alma. Söngkonan segir forsvarsmenn Hollywood Records vera ótrúlega þolinmóða og þeir bíði bara rólegir. „Við erum líka búnar að vera á fullu við að taka upp og koma okkur í form. Við erum búnar að semja heilan helling af lögum og höfum líka fengið slatta af lögum að utan,“ útskýrir Alma og viðurkennir að það sé óneitanlega svolítið dýrt að bíða svona. „Þetta kostar auðvitað allt sitt, meira að segja ferlið við að fá svona vegabréfsáritun er ekkert ókeypis. Við erum því búnar að leggja ýmislegt í sölurnar fyrir þetta.“- fgg
Mest lesið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Sjá meira