Lífið

Hæðir og lægðir Zac og Vanessu

Nektarmyndir af Vanessu láku tvisvar á netið og vilja einhverjir meina að hún standi sjálf á bak við lekann.
Nektarmyndir af Vanessu láku tvisvar á netið og vilja einhverjir meina að hún standi sjálf á bak við lekann.

Zac Efron og Vanessa Hudgens eru hætt saman eftir tæplega fimm ára samband. Hinn 23 ára gamli Zac og hin 22 ára gamla Vanessa felldu hugi saman við tökur á kvikmyndinni High School Musical fyrir fimm árum, en nú skilja leiðir.

Þær dapurlegu fréttir bárust frá Hollywood að stjörnurnar Zac Efron og Vanessa Hudgens séu hætt saman eftir tæplega fimm ára samband. Greint var frá þessu á þriðjudaginn en ástæða slitanna ku vera sú að þau hafa þurft að verja full miklum tíma aðskilin vegna vinnunnar og segja vinir þeirra að þau vilji njóta þess að vera á lausu.

Zac og Vanessa kynntust við tökur á Disney kvikmyndinni High School Musical, þar sem þau léku ástfangna unglingaparið Troy og Gabriellu, en það leið ekki á löngu þar til ástin á milli þeirra kviknaði í alvöru.

Næstu fimm árin áttu eftir að verða afar athyglisverð. Tvær aðrar High School Musical kvikmyndir voru gerðar með þeim Zac og Vanessu í aðalhlutverkum, en stuttu eftir að mynd númer tvö kom út tókst Vanessu að koma sér í heimspressuna þegar nektarmyndir af henni láku á netið. Vanessa var miður sín og útskýrði að myndirnar hefðu eingöngu átt að vera handa Zac, en hún var einungis 17 ára þegar þær voru teknar.

Þrátt fyrir hneykslið, stóð Disney samsteypan með stjörnunni sinni og Vanessa hélt hlutverki sínu sem Gabriella og samband hennar við Zac raskaðist ekki.

Það liðu aðeins tvö ár þar til nektarmynda skandallinn endurtók sig, en árið 2009 birtust fleiri myndir af Vanessu sem einnig voru teknar árið 2007. Þá fóru af stað sögur þess efnis að Vanessa stæði sjálf á bak við lekann en ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum.

Zac Efron virðist hafa sloppið við nektarmyndir af sér en miklar vangaveltur hafa þó verið um kynhneigð hans og vilja fjölmargir meina að hann sé samkynhneigður. Efron hefur hins vegar blásið á allar þær kjaftasögur.

Vinir Zacs og Vanessu eru handvissir um að þau muni taka saman á ný þar sem þau eiga víst að vera bestu vinir þrátt fyrir sambandsslitin. Við getum ekki annað en beðið og vonað það besta.

kristjana@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.