Fjallabræður syngja í Manchester 6. febrúar 2010 04:30 Meðlimir Fjallabræðra við Reykjavíkurtjörn í desember að syngja All You Need Is Love. Næst á dagskrá er Manchester 30. maí. <B>Ingi Þór Jónsson</B> hefur veg og vanda af komu kórsins. fréttablaðið/gva „
Við erum mígandi spennntir að kynna land og þjóð á erlendri grundu,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, sem syngja á evrópskri menningarhátíð í Manchester 30. maí. Það var fyrir milligöngu Inga Þórs Jónssonar, sem hefur skipulagt norræna menningarhátíð í Liverpool undanfarin ár, sem Fjallabræður fengu giggið. Að sögn Inga Þórs verða tónleikarnir á aðalsviði hátíðarinnar, öfugt við aðra norræna flytjendur sem verða á sérstöku norrænu sviði. „Ég fór með þessa hugmynd til þeirra á fund og þeim finnst þeir algjört æði,“ segir Ingi Þór um skoðun forsvarsmanna hátíðarinnar á Fjallabræðrum. „Núna þurfa þeir að fara að safna karlarnir og vonandi geta þeir komið af stað jákvæðri umfjöllun um Íslendinga.“ Búist er við á milli 30 og 40 þúsund manns á hátíðina og hefur hún fengið góða umfjöllun í gegnum árin, meðal annars hjá breska ríkisútvarpinu, BBC. Tónleikar Fjallabræðra í Manchester verða þeir fyrstu hjá sveitinni utan landssteinanna. „Við gerðum heiðarlega tilraun til að fara til Færeyja síðasta sumar og syngja á G-Festival en við náðum ekki að fjármagna það,“ segir kórstjórinn Halldór Gunnar, sem ætlar ekki að láta sama vandamál stöðva hópinn í þetta sinn. „Við erum búnir að vera að hugsa þetta síðan við urðum alvöru kór að það væri gaman að fara eitthvað saman, hvert sem það væri. Bara til að prufa hvernig það er að vera saman í rútu og á hóteli og syngja fyrir fólk sem veit ekkert um okkur og veit ekkert við hverju það á að búast. Þetta verður ævintýri, það er alveg á hreinu.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira