Blanda af Björk og Spice Girls 1. apríl 2010 03:00 Ellie Goulding Rísandi númer í poppinu.
Ellie Goulding er eitt heitasta nafnið í poppinu um þessar mundir. Dr. Gunni hlustaði á plötuna sem minnir á Emilíönu Torrini á köflum. Söngkonan og lagahöfundurinn Ellie Goulding er rísandi nafn í enska poppheiminum. Uppganginn má skrifa á að hún var í efsta sæti á árlegum lista sem heitir BBC Sound of 2010. Gagnrýnendur og fólk í poppbransanum velur á þennan lista það tónlistarfólk sem þeir telja að muni slá í gegn á nýbyrjuðu ári. Það hefur verið mark takandi á þessum lista síðustu árin. Byrjað var að birta hann árið 2003 og þá var 50 Cent efstur á honum. Síðan tók við fólk eins og Mika og Little Boots og hljómsveitin Keane. Ellie vann einnig „Critics choice“-verðlaunin á síðustu Brit-hátíð.Hætti í skóla fyrir poppiðEllie er fædd í Hereford á Englandi 30. desember 1986 og er því 23 ára. Hún lærði á gítar sem unglingur og var farin að semja þjóðlagaskotna tónlist fimmtán ára gömul. Hún fór í framhaldsskóla í Kent og kynntist Finlay Dow-Smith, sem kallar sig Starsmith, og hóf að vinna í tónlist með honum. Hann kynnti hana fyrir rafknúnu poppi og þau Ellie tóku til við að sameina þjóðlagatónlistina og rafknúið hljóðgervlaspilað vinsældapopp. Ellie hætti í skóla til að einbeita sér að poppinu þegar samningar náðust við Polydor-útgáfuna. Skömmu síðar fór maskínan í gang. Miklar væntingarFyrsta platan heitir Lights og kom út í byrjun árs. Við fyrstu hlustun virðist sem fólkið með puttann á púlsinum hafi eitthvað hlaupið á sig í ár því um ósköp hefðbundið popp er að ræða. Nokkur ágæt lög er að finna á plötunni en eins og margir gagnrýnendur hafa réttilega bent á er lítið byltingakennt og stórfenglegt við þessa frumraun. Einn gagnrýnandinn sagði að Lady Gaga hefði fleiri ferskar og athyglisverðar hugmyndir í vinstra brjóstinu en Ellie á allri plötunni. Hún er ágæt söngkona, minnir á Emilíönu Torrini á köflum, og er ágætur textahöfundur. Eðlilega eru gerðar miklar væntingar til söngkonunnar og hún fær því kannski harðari dóma en ella. Sjálf segist Ellie hafa hlustað á Spice Girls sem barn en það hafi ekki verið fyrr en hún heyrði í Björk að hún vissi hvað hana langaði að gera þegar hún yrði stór. Með þessa vitneskju lýkst upp fyrir manni hljóðheimur tónlistarkonunnar, því það má segja án mikilli ýkja að Ellie hljómi á plötunni eins og hún sé stödd einhvers staðar mitt á milli Spice Girls og Bjarkar.
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira