Innlent

Andrésar andar leikum lýkur í dag

Andrésar andar leikunum lýkur í dag.
Andrésar andar leikunum lýkur í dag.
Andrésar andar leikunum, sem staðið hafa yfir í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar frá því á miðvikudag, lýkur í dag.

Keppni hófst klukkan níu í morgun á þessum síðasta keppnisdegi en verðlaunaafhending og mótsslit verða svo í íþróttahöllinni klukkan þrjú. Nægur snjór er sagður í Hlíðarfjalli og frábært skíðafæri en lyftur verða í gangi til klukkan fjögur. Skíðasvæðið í Tindastól í Skagafirði verður einnig opið til klukkan fjögur og þar er sömuleiðis nægur snjór og færið sagt frábært.

Sama gildir um Oddsskarð á Austurlandi. Þar er auglýst að síðasti opnunardagur þennan veturinn, þótt raunar sé komið sumar, verði á morgun, sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×