Hugleikur í flottum selskap 14. október 2010 08:30 Myndir frá Hugleiki Dagssyni eru í bókinni I Found This Funny, sem framleiðandinn Judd Apatow tók saman. Gamanmál Adams Sandler, Jons Stewart og Conans O‘Brien má einnig finna í bókinni. „
Ég er á meðal einhverra 35 höfunda í bókinni. Það eru margir góðir þarna,“ segir Hugleikur Dagsson. Teikningar Hugleiks er að finna í ritsafni sem kvikmyndaframleiðandinn Judd Apatow hefur tekið saman og gefið út í bókinni I Found This Funny. Hugleikur er þar á meðal snillinga á borð við Steve Martin, Jon Stewart, Adam Sandler og Ernest Hemingway sem eiga efni í bókinni – hvort sem það er fyndið eða ekki. Apatow er gríðarlega farsæll framleiðandi og leikstjóri, en eftir hann liggja myndir á borð við Knocked Up, 40 Year Old Virgin og Superbad. „Hann sendi mér allt í einu póst,“ segir Hugleikur. „Hann hafði víst verið búinn að reyna að ná í mig á Myspace, en ég nota það ekki lengur. Það var mjög fyndið þegar ég fór á Myspace um daginn og fann gömul skilaboð frá honum: „Þetta er Judd Apatow“ svo sagði hann: „Í alvöru, þetta er sko Judd Apatow.“ Hann var að fá leyfi til að nota brandara sem ég hafði teiknað til að setja í ritsafnið sitt. Ég sagði náttúrulega já, enda er ég mikill aðdáandi Apatow.“ Ágóði bókarinnar rennur til góðgerðarmála, þannig að það liggur í hlutarins eðli að Hugleikur fékk ekki greitt fyrir verk sín í bókinni. Sjálfur bíður Hugleikur eftir sínu eintaki, en forlagið McSweeney‘s hafði nýlega samband og sagði það vera á leiðinni. - afb LOS ANGELES - JULY 12: Actor Adam Sandler attends the premiere of the Universal Pictures' film "I Now Pronounce You Chuck and Larry" on July 12, 2007 at Universal Studios in Los Angeles, California. (Photo by Vince Bucci/Getty Images) Adam Sandler
Mest lesið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Þöglu börnin gleymast í kerfinu Lífið Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Lífið Ríflega níutíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Íslandssögunnar Matur „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Lífið Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Lífið samstarf Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð Lífið Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fleiri fréttir Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Sjá meira