Nani og Meireles í stuði á Tapasbarnum eftir leikinn 14. október 2010 13:30 Bento og Nuno, veitingamenn á Tapasbarnum, eru hæstánægðir með Real Madrid-treyjuna sem þeir fengu gefins. Treyjan er árituð af Cristiano Ronaldo, Ricardo Carvalho og Pepe. Fréttablaðið/Valli „
Þeir voru mjög hressir og skemmtilegir," segir Bento Guerreiro, annar eigenda veitingastaðarins Tapasbarsins við Vesturgötu. Portúgölsku landsliðsmennirnir Nani og Raul Meireles heilsuðu upp á starfsfólk Tapasbarsins eftir landsleik Íslands og Portúgals á þriðjudagskvöldið. Portúgalski hópurinn flaug til Lissabon eftir leikinn en Nani og Meireles, sem leika á Englandi, flugu ekki fyrr en í gærmorgun. Þeim gafst því stund milli stríða. „Þeir borðuðu með landsliðinu eftir leikinn en komu svo til okkar þegar liðið var farið út á flugvöll," segir veitingamaðurinn Bento. Hann segir að þeir Tapas-menn séu vel tengdir og hafi verið búnir að tala við knattspyrnumennina áður og bjóða þeim til sín. „Við erum tveir Portúgalar sem eigum staðinn, ég og Nuno, svo þetta var auðvitað mjög gaman fyrir okkur. Þetta var nú alls ekkert partí, þetta var bara starfsfólkið og nokkrir gestir sem fengu að sitja áfram og spjalla við þá. Þeir stoppuðu samt alveg í tvo tíma hjá okkur en drukku bara kók," segir Bento. Góðir gestir á Tapas. Frá vinstri eru Bento, Nani, Nuno, Antonio og Raul Meireles. Var ekki kvenfólkið ánægt með að fá svona glæsilega menn í heimsókn? „Ja, hvað heldur þú? Við vorum auðvitað ekkert að opna út á götu og auglýsa þetta, þetta var bara starfsfólkið hérna og þær kunna sig." Nani spilar með Manchester United og Meireles spilar með Liverpool. Rígurinn milli þeirra félaga var þó ekki sýnilegur í heimsókninni á Tapasbarinn. „Nei, alls ekki," segir Bento. „Það voru einhverjir sem héldu með Liverpool og sjálfur held ég meira að segja með Chelsea." Heimsóknin mun setja svip sinn á Tapasbarinn til framtíðar. Þeir Nani og Meireles komu nefnilega færandi hendi. „Þeir komu með Real Madrid-treyju sem var árituð af Portúgölunum í liðinu - þeim Ronaldo, Pepe og Ricardo Carvalho. Við verðum ekki lengi að hengja hana upp á vegg hjá okkur," segir Bento Guerreiro, hæstánægður með heimsókn landa sinna. hdm@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira