Steindi Jr. í framboð fyrir VG 23. mars 2010 09:00 Steindi jr með hinum í Vg í Mosó. Frambjóðendurnir sem skipa sex efstu sætin. Frá vinstri: Ólafur Gunnarsson, Bryndís Brynjarsdóttir, Högni Snær Hauksson, Karl Tómasson, Sigurlaug Ragnarsdóttir og Steindi Jr. Mynd/hilmar Gunnarsson „
Þetta byrjaði með því að ég vildi fá fótboltamark aftur á Varmárvöllinn. Við strákarnir spiluðum mikið á þetta mark, en svo var það bara tekið. Það var rosalega vont. Þegar það var hringt í mig og mér boðið sæti á lista, þá var mér hugsað til marksins og sagði bara já takk,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr. Hann er í þriðja sæti á framboðslista Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs í Mosfellsbæ. „Ég ætla að verða fulltrúi unga fólksins í bænum enda margt hægt að gera fleira heldur en að redda þessu marki,“ segir Steindi. Hann er Mosfellingur frá blautu barnsbeini og veit hvernig er að alast upp í bænum. VG er núna með einn mann í bæjarstjórn en Steindi er ekki í neinum vafa um að hann komist inn. „Ég fer alveg pottþétt í bæjarstjórn. Þetta verður stórsigur! Og markið er bara byrjunin. Ég er með alveg fullt af hugmyndum. Vonandi er svo einhver peningur í þessu, ég er reyndar ekki búinn að kanna það.“ Steindi hamast nú við að taka upp efni fyrir átta sjónvarpsþætti sem byrjað verður að sýna á Stöð 2 í lok apríl. Þættirnir heita Steindinn okkar og auk Steinda er Ágúst Bent úr Rottweilerhundum aðalsprautan í þáttunum. „Þetta eru grínsketsaþættir með fullt af gestaleikurum. Þetta verða einhverjir bestu þættir sem gerðir hafa verið,“ segir Steindi fullur sjálfstrausts. En er hann ekkert smeykur um að verða stimplaður kommagrínisti? „Nei, nei, alls ekki. Ég vil bara fá fótboltamarkið aftur. Það er númer 1, 2 og 3. Svo er ég með teikniborðið fullt af hugmyndum fyrir unga fólkið.“- drg
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira