Lífið

Langar að eignast dóttur

Stefani óttast að hún sé orðin of gömul til að eignast dóttur.
Stefani óttast að hún sé orðin of gömul til að eignast dóttur.

Söngkonuna Gwen Stefani langar að eignast dóttur en óttast að hún sé orðin of gömul til að standa í frekari barneignum. Hin fertuga Stefani á hinn þriggja ára Kingston og 19 mánaða Zuma með breska rokkaranum Gavin Rossdale.

„Það er dálítið skrítið að ég skuli ekki eiga stelpu en mér finnst ég vera alveg að renna út á tíma. Ég vil líka eiga nægan tíma fyrir börnin sem ég er búin að eignast,“ sagði Stefani.

„Að eignast börn er það erfiðasta sem ég hef nokkru sinni gert. Enginn hefði getað undirbúið mig fyrir það hversu æðislegt og um leið erfitt það er.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.