Kaldhæðin örlög Stefáns Karls 5. nóvember 2010 18:00 Stefán Karl þarf að vera einn um jólin en þegar hátíð ljóss og friðar stendur sem hæst verður hann í Toronto að leika í söngleiknum Hvernig Trölli stal jólunum. „
Þetta er mjög kaldhæðið og í raun bara ömurlegt. En svona er bara þessi bransi og það verða bara Skype-jól í ár,“ segir Stefán Karl Stefánsson leikari. Stefán er byrjaður að leika aftur græna tröllið í söngleiknum Hvernig Trölli stal jólunum, sem fer á flakk um mið- og suðurríki Bandaríkjanna og lýkur í Toronto í Kanada um jólin. Hann þarf að eyða jólunum einn í Toronto. Stefán var staddur í Omaha þegar Fréttablaðið náði tali af honum og segir það hafa verið ógjörning að fljúga allri fjölskyldunni yfir landamærin til Kanada. „Það hefði kostað rúmlega hálfa milljón og slíkt hefði þýtt engar jólagjafir í ár.“ Stefán segir það óneitanlega grátbroslegt að ein af lykilsetningum sýningarinnar sé einmitt að enginn skuli vera einn um jólin. „Ef ég væri „method“-leikari þá hefði þetta kannski verið í lagi. En ég er það náttúrlega ekki og þess vegna er þetta fúlt.“ Níutíu sýningar hafa verið skipulagðar en nánast uppselt er á þær allar, sem þýðir að Stefán mun að öllum líkindum leika fyrir rúmlega 200 þúsund manns þar sem ekkert leikhús undir 2.300 áhorfendum getur hýst sýninguna. „Við erum 32 leikarar og 64 alls. Við fljúgum á milli staða en leikmyndin og leikmunir eru ferjaðir á milli í ellefu áttatíu feta trukkum,“ útskýrir Stefán, sem verður því nánast á stanslausu ferðalagi næstu tvo mánuði en síðasta sýningin verður 2. janúar.- fgg
Mest lesið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Lífið Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Lífið Fleiri fréttir Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Sjá meira