Sveppi í þrívíddartökum 24. apríl 2010 09:30 Villi, Gói og Sveppi á tökustað í myndveri Latabæjar í gær ásamt Braga Þór Hinrikssyni leikstjóra. Sveppi segir hann og Braga vera eins og litla stráka en þrívíddargræjurnar þeirra eru komnar til landsins. Fréttablaðið/Stefán
Sveppi og félagar undirbúa nú gerð framhaldsmyndar í Algjörum Sveppa-flokknum. Næsta mynd verður tekin upp í þrívídd. „Þetta eru prufutökur, tækin eru komin til landsins, speglakassinn og þrívíddarskjárinn, og við erum bara að fikra okkur áfram og athuga hvort mánuður sé nóg fyrir okkur,“ segir Sverrir Þór Sverrisson en hann ásamt Braga Þór Hinrikssyni eru byrjaður að fikta við þrívíddartæknina fyrir næstu myndina í Algjörum Sveppa-flokknum. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá verður næsta mynd um Algjöran Sveppa tekin upp í þrívídd en fyrsta myndin sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári. Sverrir og Bragi hafa komið sér fyrir í myndveri Latabæjar í Garðabæ og ætla að prófa sig aðeins áfram. „Bragi er alveg með í maganum yfir þessu og er að reyna að láta þetta ganga upp. Við viljum gera þetta almennilega, fólk má ekki fá ofbirtu í augun því það er eitt að taka þetta upp og annað að koma þessu á hvíta tjaldið,“ segir Sverrir sem er þó hvergi banginn. „Kannski standa tökurnar yfir í þrjátíu daga og kannski þrjú hundruð daga. James Cameron var víst nokkur ár með eina þrívíddarmynd,“ segir Sveppi og vísar þar í Avatar-myndina. Leikarinn segir þá vera eins og tvo litla stráka sem hafi fengið snemmbúna jólagjöf. „Við prófuðum að taka aðeins upp úti í garði í þrívídd og þetta leit alveg ótrúlega vel út,“ segir Sverrir en myndin mun heita Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið. Vilhelm Anton Jónsson og Guðjón Davíð Karlsson endurtaka hlutverk sín frá fyrstu myndinni en við hópinn bætast þau Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Auðunn Blöndal, sem hefur lengi gengið með leikaradrauminn í maganum, fær ekki hlutverk í þessari fyrstu þrívíddarmynd okkar Íslendinga. „Nei, þetta er enginn fíflaskapur. Pétur Jóhann ætlar kannski að leika lítið hlutverk ef hann nennir,“ segir Sveppi. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Fleiri fréttir Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Sjá meira