Fásinna að rifta kaupum Magma á HS orku 20. júlí 2010 04:00 Ólík sjónarmið eru innan stjórnarflokkanna varðandi aðkomu Magma að HS orku. Þingmaður VG vill finna leiðir til að rifta kaupum félagsins, en þingmaður Samfylkingar fagnar aðkomu þess að áhætturekstri sem ríkið eigi ekki að vasast í. Fréttablaðið/Valli
Fari svo að stjórnvöld hlutist til um að rifta kaupum Magma á hlut Geysis Green Energy í HS orku kann það að leiða til þess að auðlindin sjálf lendi í höndum erlendra kröfuhafa bankanna. Þetta segir Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar. Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, upplýsti í Fréttablaðinu um helgina að þótt ekki væri vænlegt fyrir ríkið að ganga inn í kaupin, vegna kostnaðar, væri til skoðunar hvort rifta mætti kaupunum. Samfylking og Vinstri græn eru í ríkisstjórn. Magnús Orri segir mjög ranga stefnu að opna þann möguleika að ríkið stígi inn í samningana með einhverjum hætti, enda gæti það unnið gegn yfirlýstu markmiði um að halda orkuauðlindum í íslenskri eigu og um leið orðið til þess að fæla erlenda fjárfestingu frá landinu. „Það er ekki verið að selja auðlindina sjálfa heldur fyrirtæki sem sér um nýtingarréttinn. Þetta er áhætturekstur sem opinberir aðilar eiga ekki að skipta sér af og algjör fásinna að ríkið eigi að fara inn í þetta mál,“ áréttar hann og telur að ef gripið yrði inn í ferlið, til dæmis með lagasetningu, þá yrði undið ofan af öllum samningum sem gerðir hafa verið um HS orku, allt aftur til þess tíma þegar eitt fyrirtæki átti bæði orkuna og nýtingarréttinn. „Að óbreyttu væri það fyrirtæki gjaldþrota og í eigu erlendra kröfuhafa og auðlindin myndi því færast í eigu útlendinga. Menn þurfa að átta sig á því hvert þetta leiðir.“ Aukinheldur telur Magnús Orri að inngrip stjórnvalda myndi koma í veg fyrir erlenda fjárfestingu í landinu næstu árin. „En við þurfum erlenda peninga inn í landið til þess að koma hér hjólum atvinnulífsins aftur af stað. Ég hins vegar heyri það að erlendir aðilar sem eru að velta fyrir sér að koma hingað, til dæmis í tengslum við gagnaver, spyrja sig hvort þeir eigi að leggja í þessa leið. Því ef Ross Beaty [forstjóri Magma] sem er búinn að búa til sjálfseignarstofnun í kringum sínar fjárfestingar fær ekki góðan byr með þær hér, þá sjá þeir ekki fram á að vel gangi hjá þeim sjálfum. En veigameira er að inngrip stjórnvalda í lögmæta viðskiptasamninga ber vott um stjórnmálalegan óstöðugleika sem er eitur í beinum erlendra fjárfesta.“ olikr@frettabladid.is Magnús Orri Schram
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Sjá meira