Sextíu viðburðir á Listahátíð í ár 30. mars 2010 09:00 Listrænn stjórnandi Listahátíðar kynnti dagskrána í gær. fréttablaðið/anton
Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík sem stendur yfir frá 12. maí til 5. júní var kynnt í gær. Við sama tækifæri var opinberuð einkennismynd hátíðarinnar. Listahátíð í Reykjavík er 40 ára um þessar mundir og hafa bækistöðvar hennar verið fluttar í upprunalegt aðsetur hátíðarinnar, hið sögufræga hús Gimli á Bernhöftstorfunni. Bandaríska rokksveitin Led Zeppelin spilaði á fyrstu Listahátíðinni árið 1970. Síðan þá hefur tíðarandinn breyst á meðan hátíðin sjálf hefur ávallt reynt að halda í gildi sín. „Í grunninn er útgangspunkturinn sá sami. Þetta er enn þá hátíð allra listgreina og horfir bæði út í heim og á íslenska listsköpun. Þetta upplegg frá 1970 er enn í fullu gildi," segir Hrefna Haraldsdóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar. „Auk íslenskra listamanna koma á hátíðina erlendar stórstjörnur og listamenn á hraðri uppleið, eins og tíðkast hefur frá upphafi. Það sem einkennir einnig hátíðina í ár eru listviðburðir sem stefna saman fleiri en einni listgrein." Dagskráin í ár verður glæsileg eins og svo oft áður. Yfir sextíu viðburðir verða haldnir þar sem allar listgreinar koma við sögu. Íslenskir listamenn munu sýna á sér nýjar og óvæntar hliðar, í mörgum tilvikum í samstarfi við erlenda listamenn. Hljómsveitin Amadou & Mariam opnar hátíðina með tónleikum í Laugardalshöll og á meðal annarra hápunkta eru tónleikar norska píanósnillingsins Leifs Ove Andsnes og tónleikar Kristins Sigmundssonar þar sem hann flytur eftirlætis óperuaríur sínar ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og Óperukórnum. Megas heldur sína fyrstu tónleika á Listahátíð og flytur meðal annars nýtt efni eftir son sinn, tónskáldið Þórð Magnússon. Uppfærsla á Rómeó og Júlíu kemur frá Litháen í leikstjórn eins virtasta leikstjóra Evrópu, Oskaras Korsunovas, og einnig verður íslenska leikverkið Af ástum manns og hrærivélar frumsýnt. Í fyrsta sinn verður haldin sérstök hátíð ljósmyndarinnar hér á landi og nefnist hún Raunveruleikatékk. Tuttugu ljósmyndasýningar verða í sýningarsölum, söfnum og á götum úti, auk námskeiða og viðburða í tengslum við þær. Einkennismynd Listahátíðar í ár var afhjúpuð í gær og nefnist hún Afi. Hún er eftir ljósmyndarann Friðgeir Helgason sem opnar sýninguna Breiðholt - í augnablikinu á hátíðinni í vor. Miðasala á Listahátíð í Reykjavík er hafin á síðunum Listahatid.is og Midi.is. Miðaverði er stillt í hóf og er á bilinu eitt þúsund til rúmlega fimm þúsund krónur. Auk þess er ókeypis aðgangur á marga viðburði. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Fleiri fréttir Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Sjá meira