Innlent

Fá ekki að skila lyklunum að sinni

Ekki stendur til að breyta lögum til að þeir sem eru í skuldavanda vegna íbúðaláns geti einfaldlega skilað inn lyklunum og verið skuldlausir eftir, sagði Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra í gær.

Hann segir slíkt geta haft mjög neikvæð áhrif á fasteignamarkaðinn, og geta gert láglaunafólki mjög erfitt að fá lán fyrir húsnæði.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði slíka lagabreytingu ekki útilokaða. Hún gangi þó ekki upp fyrir samninga sem þegar hafi verið gerðir. Hins vegar sé alls ekki útilokað að slíkur möguleiki verði lögfestur síðar, en þá muni hann væntanlega eingöngu standa þeim til boða sem taki lán eftir að lögunum verði breytt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×