Innlent

Hollendingar stoppa ekki aðildarviðræður

Hollendingar ætla ekki að koma í veg fyrir að Íslendingar geti hafið aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta var haft eftir hollenska utanríkisráðherranum í gær.

Áður höfðu Hollendingar látið að því liggja að Icesave-deilan gæti komið í veg fyrir að viðræður gætu hafist. Maxime Verhagen utanríkisráðherra sagði hins vegar í gær að Hollendingar vilji heldur að Íslendingar ræði við sambandið í stað þess að þeir snúi við því baki.

Hins vegar væri ljóst að samningar um Icesave yrðu að nást áður en Ísland gæti gerst aðili að Evrópusambandinu. „Á einn eða annan hátt verðum við að fá peningana til baka," sagði ráðherrann á hollenska þinginu í gær.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×