Lífið

Sendi fyrrverandi rándýrt kampavín

Jennifer Aniston. MYND/Cover Media
Jennifer Aniston. MYND/Cover Media

Jennifer Aniston sendi fyrrum unnusta sínum, leikaranum Vince Vaughn, 109 þúsund króna flösku af kampavíni þegar hún frétti að hann væri að verða pabbi.

Jennifer og Vince urðu ástfangin þegar þau léku saman í kvikmyndinni The Break-Up árið 2006. Eftir að þau hættu saman hafa þau verið góðir vinir.

Jennifer segist samgleðjast Vince og eiginkonu hans, Kylu Weber, sem hann giftist í byrjun árs í viðurvist 65 manns. Vince tilkynnti í síðasta mánuði að þau ættu von á barni.

„Þetta er í fyrsta sinn sem mig virkilega langar að eignast börn," lét Vince hafa eftir sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.