Innlent

Vilja leiga rými fyrir þinghaldið

Þingmenn Hreyfingarinnar. Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari.
Þingmenn Hreyfingarinnar. Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari.
Þingmenn Hreyfingarinnar hafa ritað Héraðsdómi Reykjavíkur opið bréf og óskað eftir því mál níu mótmælenda sem sóttir eru til saka fyrir að fara inn í Alþinghúsið í Búsáhaldabyltingunni í byrjun síðasta árs verði tekið fyrir í stærra rými. Þeir bjóðast til að leigja stærra rými fyrir réttarhöldin.

Þegar fyrirtaka fór fram í málinu 30. apríl sl. voru tveir einstaklingar sem fylgdust með málinu handteknir. Áhorfendasvæðið var fullt þegar fyrirtakan hófst og voru mun fleiri í salnum en áhorfendasætin rúmuðu. Dómarinn fyrirskipaði að einungis þeir gætu verið inni í salnum sem höfðu sæti. Það sættu sig ekki allir við og þá var lögregla kölluð til sem fjarlægði tvo áhorfendur með valdi.

„Af fenginni reynslu má víst telja að mun fleiri hafi áhuga á að vera viðstaddir réttarhöldin, enda er það réttur almennings. Því miður kom til ofbeldis í Héraðsdómi síðast þegar málið var á dagskrá þegar lögregla fjarlægði með valdi sætislausan borgara.  Atburðurinn vakti skelfingu og ótta meðal viðstaddra,“ segir í bréfi þingmanna Hreyfingarinnar.

Þeir segja að enginn hafi áhuga áhuga á að slíkir atburðir endurtaki sig. „Því skora undirrituð á Héraðsdóm að beita sér fyrir því að þinghaldið fari fram í stærra rými svo fleiri rúmist við þinghaldið með góðu móti. Til að sýna hug okkar í verki bjóðumst við til að útvega nægilega stórt rými undir þinghaldið og standa straum af kostnaði við leigu þess. Einnig mætti hugsa sér að koma fyrir tækjabúnaði í dómsalnum svo hægt verði að sýna beint frá því í stærra rými.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×