Hleypur í skarðið fyrir Bond-leikara og Gael Garcia Bernal 9. desember 2010 13:00 Vekur athygliá INdlandi Tómas Lemarquis leikur stórt hlutverk í nýrri indverskri kvikmynd, Mushrooms eftir indverska leikstjórann Vimukthi Jayasundara. Upphaflega stóð til að mexíkóska stórstjarnan Gael Garcia myndi leika í myndinni, svo hljóp Darwin Shaw í skarðið og loks voru uppi hugmyndir um að Sir Ben Kingsley myndi bjarga málunum. Að lokum var það hins vegar Tómas Lemarquis sem reddaði myndinni. „
Ég og leikstjórinn Vimukthi Jayasundara eigum sameiginlegan vin sem benti honum á mig,“ segir leikarinn Tómas Lemarquis. Hann er staddur í Kolkata (Kalkútta) á Indlandi um þessar mundir að leika í stríðsmyndinni Mushrooms. Myndin samanstendur af þremur sögum og leikur Tómas landamærahermann í einni þeirra. Tómas flaug beint frá Belgrad þar sem hann sat í dómnefnd á kvikmyndahátíð en íslenski leikarinn hefur vakið töluverða athygli á Indlandi. Times of India birti meðal annars flennistórt viðtal við hann, sem Tómas segir hafa verið tekið á harðahlaupum með háværum bílflautum og öskrandi fólki í aukahlutverkum. „Blaðamaðurinn þurfti að geta ansi mikið í eyðurnar eins og sést.“ Athyglin er hins vegar skiljanleg, leikstjórinn Jayasundara þykir vera í fremstu röð indverskrar kvikmyndagerðar og hlaut meðal annars Gullnu kameruna á Cannes-hátíðinni fyrir fimm árum og keppti um Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á síðasta ári. Tómas er í rauninni þriðji valkostur í hlutverkið en að því er ekki spurt í kvikmyndagerð. Fyrst stóð nefnilega til að mexíkóska stórstjarnan Gael Garcia Bernal léki hlutverkið. „Hann var hins vegar að fara að eignast annað barnið sitt og varð því að afþakka það.“ Þá kom til sögunnar pakistanski leikarinn Darwin Shaw sem margir muna eflaust eftir úr Bond-myndinni Casino Royal og Prince of Persia. „Hann náði hins vegar ekki að útvega sér réttu pappírana í tæka tíð,“ útskýrir Tómas. Shaw þessi er hálfur Pakistani og eins og flestum ætti að vera kunnugt um er grunnt á því góða milli þeirra þjóða. Samkvæmt indverskum fjölmiðlum reyndi Shaw að fá Sir Ben Kingsley til að hlaupa í skarðið fyrir sig. Það náðist hins vegar ekki í tæka tíð og því er Íslendingurinn Tómas Lemarquis nú kominn til Indlands. Tómas segist hins vegar ekki verða ríkur af þessu hlutverki, myndin sé gerð fyrir lítið fé og sé svokölluð „arthouse“-kvikmynd. Hann verður hins vegar á ferð og flugi á næstunni. „Fram undan er hlutverk í spænskri kvikmynd sem ég er búinn að bíða eftir í fjögur ár og er eftir leikstjórann Juan Carlos Medina. Svo var að koma upp annað verkefni í Þýskalandi, mjög spennandi, en þar sem ég er ekki búinn að skrifa undir vil ég ekki gefa neitt meira upp að svo stöddu.“freyrgigja@frettabladid.is MARRAKECH, MOROCCO - DECEMBER 04: Actor Gael Garcia Bernal attends the Tribute to the French Cinema during the 10 th Marrakech Film Festival on December 4, 2010 in Marrakech, Morocco. (Photo by Dominique Charriau/Getty Images) Vimukthi Jayasundara/Gael Garcia BernalDUBAI, UNITED ARAB EMIRATES - DECEMBER 16: Director Vimukthi Jayasundara with the Muhr AsiaAfrica Feature award for Best Cinematographer on behalf of Channa Deshapriya during the Closing Night Award Ceremony at the 6th Annual Dubai International Film Festival held at the Madinat Jumeriah Complex on December 16, 2009 in Dubai, United Arab Emirates. (Photo by Andrew H. Walker/Getty Images for DIFF) Vimukthi Jayasundara/Gael Garcia Bernalasdf
Mest lesið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Lífið samstarf Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira