Ölstofan með eigin Bríó-bjór 5. júní 2010 06:00 Kormákur og Skjöldur með Bríó-bjórinn sem er eingöngu fáanlegur á Ölstofunni. mynd/arnar halldórsson „
Hann er algjör snilld. Hann er strax orðinn söluhæsti bjórinn á Ölstofunni,“ segir Kormákur Geirharðsson, veitingamaður hjá Ölstofu Kormáks og Skjaldar. Fyrsti bjórinn frá Borg, nýju brugghúsi Ölgerðarinnar, nefnist Bríó og er sérstaklega bruggaður fyrir Ölstofu Kormáks og Skjaldar. „Það er mikið humlabragð af þessum bjór. Hann er afskaplega svalandi og ekki of rammur,“ segir Kormákur, hæstánægður með nýja mjöðinn. Hálft ár er síðan Kormákur og Skjöldur Sigurjónsson byrjuðu að smakka bjórinn til í samvinnu við sérfræðinga Ölgerðarinnar. Ölstofan seldi lengi vel Grolsch-bjór frá Ölgerðinni en eftir að nýja brugghúsið fór af stað bauðst Kormáki og Skildi að þróa sinn eigin bjór. Nafnið Bríó er í höfuðið á hljóð- og tónlistarmanninum Steingrími Eyfjörð sem lést á síðasta ári. Það var Karlakór alþýðunnar, þar sem Steingrímur var kórstjóri, sem söng lagið Stúlkan frá Týról þar sem setningin „Svona er að vera bríó“ kemur fyrir í textanum. Steingrímur var kallaður Bríó í framhaldi af því. „Hann var mikill og góður kúnni hjá okkur og mikill vinur minn og okkar strákanna. Þetta er honum til heiðurs enda var hann mikill bjóráhugamaður. Svo þýðir Bríó líka að vera léttlyndur og hress, þó að hlutirnir gangi kannski ekki alltaf upp,“ segir Kormákur. - fb
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Sjá meira