Biðin loks á enda 17. desember 2010 15:37 Fatahönnuðurinn Ýr Þrastardóttir hefur sent frá sér sína fyrstu fatalínu, en hún vakti mikla athygli fyrir útskriftarlínu sína í vor. Fréttablaðið/Valli
Ýr Þrastardóttir útskrifaðist úr fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands síðasta vor. Hún vakti mikla athygli fyrir útskriftarlínu sína, sem þótti sérstaklega falleg og klæðileg. Hún er nú farin að hanna undir nafninu Ýr og kemur fyrsta fatalína hennar út í dag. Nýja línan er unnin út frá útskriftarlínunni en Ýr bætti nýjum flíkum við línuna, sem inniheldur meðal annars buxur, boli, jakka og samfellur. „Ég fékk margar fyrirspurnir um útskriftarlínuna og áttaði mig á því að ég gæti aldrei staðið undir öllum þessum pöntunum sjálf, þess vegna ákvað ég að láta framleiða hana fyrir mig,“ útskýrir Ýr. Flíkurnar eru framleiddar á Indlandi og heimsótti Ýr landið í sumar til að fylgja framleiðslunni eftir. „Ég hafði samband við aðra íslenska hönnuði sem hafa látið framleiða fyrir sig þarna úti og þeir komu mér í samband við réttu aðilana. Ég fór svo út í sumar til að fylgja framleiðsluferlinu eftir og sjá til þess að engin vandamál kæmu upp,“ segir hún. Aðspurð segist Ýr mjög spennt fyrir nýju línunni enda hafi hún beðið lengi eftir að fá hana í hús. „Ég er mjög spennt enda búin að bíða eftir þessu frá því í sumar. Ég er búin að fá hluta af línunni og afgangurinn kemur strax í næstu viku. Vörurnar eru fáanlegar í versluninni Kiosk frá og með deginum í dag en svo ætla ég að reyna að koma þeim að í fleiri verslunum innan skamms,“ segir Ýr, sem er þegar farin að hanna næstu línu. Nýju línunni verður fagnað í versluninni Kiosk klukkan 20.00 í kvöld. Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér Ýr Collection er beint á að heimasíðan www.yr-collection.com verður opnuð innan tíðar.
Mest lesið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman Lífið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Lífið samstarf Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Þingmaður selur húsið Lífið Fleiri fréttir Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Sjá meira