Ungmeyjar grétu þegar meðlimir Árstíða árituðu 23. desember 2010 06:00 árstíðir Þjóðlagahljómsveitin Árstíðir nýtur aðstoðar umboðskonunnar Mariu Chelnokovu.
Þjóðlagahljómsveitin Árstíðir hefur ráðið rússneska umboðskonu sem bókar nú hvert giggið á fætur öðru í Austur-Evrópu. Þjóðlagahljómsveitin Árstíðir hefur ráðið til sín rússnesku umboðskonuna Mariu Chelnokovu. Hún sér um að bóka tónleika fyrir sveitina í Austur-Evrópu og víðar og koma henni á framfæri í fjölmiðlum. „Hún vinnur fyrir rússneskan menningarsjóð og fann okkur í gegnum IMX [Iceland Music Export],“ segir söngvarinn Ragnar Ólafsson. „Hún hafði samband síðasta vor og vildi fá okkur á tónleika í Rússlandi.“ Árstíðir tóku boðinu fagnandi og drifu sig í tíu daga túr til Finnlands og Rússlands. „Þetta var alveg frábært. Það var þvílík mæting, 250 manns að jafnaði á tónleikum og stofnaður aðdáendaklúbbur í St. Pétursborg. Við spiluðum í aðalmenningarhúsinu í Moskvu og rússnesk sjónvarpsstöð tók upp tónleikana og við fórum í viðtal á nokkrum útvarpsstöðvum. Síðan höfum við verið að dúkka upp í alls konar tímaritum,“ segir Ragnar, sem er gríðarlega ánægður með störf Mariu. „Þessi túr sem við fórum á sýnir hvers hún er megnug. Við erum í skýjunum með að hafa fundið þessa manneskju.“ En hvers vegna eru Árstíðir svona vinsælt band í Rússlandi? „Ísland hefur gott orð á sér þarna og íslensk tónlist er spennandi, enda eru Sigur Rós og múm dáðar þarna úti,“ útskýrir Ragnar. „Síðan er líka mjög mikil þjóðlagahefð í Austur-Evrópu og það sem Árstíðir eru að gera hittir beint í mark. Við lentum meira að segja í því að unglingsstúlkur voru að bresta í grát þegar við árituðum plötuna okkar.“ Hljómsveitin ætlar í tvær tónleikaferðir um Rússland og víðar um Austur-Evrópu í ágúst á næsta ári sem standa alls yfir í tvo mánuði. Ný plata verður tekin upp næsta sumar og vilja Ragnar og félagar tryggja sér dreifingarsamning í Rússlandi áður en farið verður út. „Flest bönd á Íslandi reyna við Bandaríkja- og Bretlandsmarkað en það er mjög erfiður markaður. Við ætlum að bíða með það og hamra járnið í Austur-Evrópu og Rússlandi á meðan það er svona funheitt,“ segir Ragnar. Næstu tónleikar Árstíða hér heima verða í Fríkirkjunni á Þorláksmessu þar sem hljómsveitin spilar sín eigin lög í bland við jólalög í nýjum útsetningum.freyr@frettabladid.is
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Fleiri fréttir Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Sjá meira