Lífið

Megas slær á skort

Megas með margt í pípunum.
Megas með margt í pípunum.
Á árunum 1973-74 gaf Megas sjálfur út þrjú textahefti með nótum af lögunum sínum. Heftin voru myndskreytt af höfundi og komu út í mjög takmörku fjölrituðu upplagi. Heftin hafa selst á ofurprís hafi þau sést og því er nú búið að að framleiða vandaðar eftirprentanir í takmörkuðu upplagi. Heftin má nálgast í Bókabankanum við Baragötu í Kolaportinu á laugardögum og sunnudögum.

Árið 1992 gaf Almenna bókafélgið út heildarsafn af textum Megasar og hvarf sú bók með snatri úr hillunum. Í haust ætlar JPV að gefa út sams konar safn og bætir auðvitað því efni sem komið hefur út síðan AB-bókin kom út. Í bókinni, sem búast má við að verði vel á 700 blaðsíður, verða allir textar Megasar í réttri tímaröð.

Megas, sem verður 65 ára í apríl, hefur sett stefnuna á nýja plötu, sem ætti að koma út með haustinu. Ýmsar þreifingar eru nú í gangi með það hverjir muni spila með Megasi á þessari plötu, en samstarf hans og Senuþjófanna, að minnsta kosti sumra Senuþjófa, er lokið í bili.

- drg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.