Diskóið læknar svínaflensuna 11. desember 2010 08:00 Diskókvöld Margeirs snýr aftur á annan í jólum eftir fimm ára hlé. Hér gefur að líta bókakápu nýrrar ævisögu Margeirs og myndir frá því er hann djammaði með Cher og John Travolta.
Eftir fimm ára hlé snýr Margeir Ingólfsson aftur með sitt vinsæla diskókvöld á annan í jólum. Tilefni endurkomunnar er skinkuvandmál unglingsstúlkna í tengslum við svínaflensuna og ævisaga hans sem var rituð í hans óþökk. Diskókvöld Margeirs voru haldin tíu ár í röð og nutu mikillar hylli þangað til plötusnúðurinn ákvað að setja þau í salt. Núna, fimm árum síðar, hefur hann snúið aftur og í þetta sinn verður diskóið á skemmtistaðnum Austur á annan í jólum. „Ég var eiginlega búinn að ákveða að enda ekki sem enn einn glataði gaurinn sem kemur með kombakk á súlnasal Hótels Sögu. En það má eiginlega segja að það sem hafi rekið mig af stað aftur var að ég rakst á tilkynningu frá sóttvarnalækni um að á landinu hafi greinst skætt tilvik svokallaðrar svínaflensu,“ útskýrir Margeir. „Þessi skæða veirusýking herjar aðallega á unglingsstúlkur og lýsir sér þannig að hárið á þeim aflitast og andlitið á þeim verður appelsínugult. Þær skinkast sem sagt upp á metttíma. Það er ljóst að hraði og eðli útbreiðslunnar gefur tilefni til að hafa miklar áhyggjur og þess vegna taldi ég skyldu mína að bregðast við. Það má segja að það sé ákveðið samfélagsverkefni þessi endurkoma því diskóið læknar skinkur.“ Önnur ástæða er einnig fyrir endurkomunni að sögn Margeirs: „Ég frétti af því að kunnur ævisagnaritari hér í bæ, Ingólfur Margeirsson, maðurinn sem allir halda að sé pabbi minn, hafi komist í dagbókina mína og hafist handa við að rita ævisögu mína án þess að láta mig vita og ætlað að gefa hana út fyrir jólin,“ segir hann. „Það var í raun í ljósi þessara tveggja atriða sjálfgefið að slá upp eins og einum diskódansleik.“ freyr@frettabladid.is Margeir Plötusnúðurinn Margeir heldur diskókvöld á Austri annan í jólum. Efsta myndin prýðir kápu ævisögu hans en hinar tvær eru frá því hann djammaði með Cher og John Travolta.ff
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira