Lífið

Tarantino vill fá GaGa

lady gaga GaGa leikur hugsanlega leigumorðingja í næstu mynd Quentins Tarantino.
lady gaga GaGa leikur hugsanlega leigumorðingja í næstu mynd Quentins Tarantino.

Söngkonan vinsæla Lady GaGa mun hugsanlega leika fyrir Quentin Tarantino í einhverjum af næstu myndum hans. GaGa og Tarantino ræddu saman eftir að leikstjórinn lánaði henni Pussy Wagon-bílinn, sem var notaður í myndinni Kill Bill, vegna myndbandsins við lagið Telephone.

„Quentin er mikill aðdáandi GaGa og hrífst mjög af persónuleika hennar," sagði kunningi leikstjórans. „Hann er þegar búinn að fá hana í nokkur verkefni. Eitt þeirra verður líklega hlutverk leigumorðingja."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.