Ég veit hvar bin Laden er 13. mars 2010 06:00 Fálkabransinn er ógnarstór en valdamiklir menn fyrir botni Persaflóa eru reiðubúnir til að borga mikinn pening fyrir fálka. Örn Marinó Arnarson og Þorkell Harðarson hafa gert heimildarmynd um þennan iðnað og voru hársbreidd frá því að komast í kynni við Osama Bin Laden.
Íslenska heimildarmyndin Feathered Cocaine verður frumsýnd á kvikmynda-hátíð Roberts De Niro, Tribeca, í lok apríl í New York. Kvikmyndagerðarmennirnir voru ansi nálægt því að hitta alræmdasta hryðjuverkamann heims. „Við vorum einu handabandi frá honum,“ segir Örn Marinó Arnarson kvikmyndagerðarmaður í samtali við Fréttablaðið. Hann segist vita hvar í heiminum Osama Bin Laden er og er sannfærður um að bandarísk yfirvöld hafi ekki nokkurn áhuga á að ná honum. „Þeir hafa sömu upplýsingar og við og ég veit allavega hvar hann hefur haldið sig undanfarin ár,“ segir Örn en þeir tóku meðal annars viðtal við mann í myndinni sem var að veiða með Bin Laden eftir að hann varð mest eftirlýsti maður heims. Örn ásamt samstarfsfélaga sínum, Þorkatli Harðarsyni, frumsýnir heimildarmyndina Feathered Cocaine á kvikmyndahátíðinni Tribeca í New York sem hefst 21. apríl og stendur til 2. maí. Hátíðin var stofnuð af stórleikaranum Robert De Niro eftir árásirnar á Tvíburaturnanna 2001. Viðeigandi, segir Örn. Að sögn kvikmyndagerðarmannsins stóð upphaflega til að gera litla rómantíska heimildarmynd um fálkaveiðar og sögu þeirra. „Steingrímur heitinn Eyfjörð hafði sagt okkur helling af fálkasögum og Friðrik Þór líka. En þegar við fórum að leita eftir leyfum og öðru slíku var okkur hafnað undarlega oft og það gaf okkur hugboð um að víða væri pottur brotinn í þessum málum.“ Örn og Þorkell þeyttust heimshornanna á milli, dvöldust í ríkjum Sovétríkjanna sálugu en lönd á borð við Kasakstan og Tadsjikistan hafa verið vinsæl fálkalönd eftir að járntjaldið hrundi með skelfilegum afleiðingum fyrir fálkastofninn. Þeir fóru auk þess til landanna við Persaflóa, Svíþjóðar, Bandaríkjanna og fjölda annarra landa. „Þetta hefur því verið mikið flakk á okkur.“ Aðalpersóna myndarinnar er fálkafíkillinn Alan Howell Parrot sem er hálfgerð goðsögn í þessum bransa. „Þetta er maður sem hafði lifibrauð sitt af því að selja fálka til voldugra manna við Persaflóa, manna eins og keisarans í Írans og olíufursta. Hann sneri síðan baki við þessari iðn og hefur barist hart gegn henni enda er markvisst verið að útrýma þessum stofni með þessum markaði,“ útskýrir Örn. Hann bætir því við að þetta sé ógnarstór bransi þar sem topparnir, prinsarnir og furstarnir, eru verstir. „Í gamla daga var það þannig að menn notuðu fálkann til að veiða sér til matar. Þetta var fyrir daga olíunnar. Núna er þetta bara elítusport þar sem menn lenda á Boeing 747-þotum úti í miðri eyðimörkinni, keyra um á sérsmíðuðum drekum og láta fálkann veiða.“ Örn segir eflaust hafa verið léttara mál að gera mynd um mafíuna en fálkasölu því menn voru þöglir sem gröfin um málið. „Það var enginn reiðubúinn til að tjá sig, enginn vildi í raun tala við okkur og við komumst aldrei nálægt þessum furstum,“ segir Örn sem verður viðstaddur frumsýninguna í New York ásamt Þorkatli sem búsettur er í Brooklyn. „Annars er rétt að taka fram að við tileinkum þessa mynd Steingrími og minningu hans,“ segir Örn en Steingrímur samdi tónlistina við myndina. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Sjá meira