Lífið

Illa lyktandi í viðtölum

Kristen Stewart segist ekki enn vera búin að venjast því að tala um sjálfa sig í viðtölum.
Kristen Stewart segist ekki enn vera búin að venjast því að tala um sjálfa sig í viðtölum.
Leikkonan Kristen Stewart segist ekki njóta þess að tala um sjálfa sig í viðtölum. Hún verði svo stressuð að hún svitni og lykti illa. „Þetta lagast með æfingunni. En ég verð svo stressuð að ég veit ekki hvernig á að takast á við þetta,“ segir leikkonan sem slegið hefur í gegn í Twilight-myndunum.

Stewart segir jafnframt að hún reyni að láta þetta ekki há sér. „Ég er mjög utan við mig þegar ég er stressuð. Þá nudda ég saman þumlunum og svitna á höndunum og lykta mjög illa.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.