Lífið

Þakkar lyftingum stæltan kropp

Kelly Rowland. MYND/Cover Media
Kelly Rowland. MYND/Cover Media

Söngkonan Kelly Rowland, 29 ára, segir að æfingarnar sem hún hefur stundað undanfarið ár séu farnar að borga sig því líkami hennar er orðinn stæltur og vel tónaður.

Kelly, sem byrjaði söngferil sinn með stúlknabandinu Destiny's Child, segir að hún þurfi virkilega að hafa fyrir því að vera í góðu líkamlegu formi.

„Ég mæti daglega í líkamsræktina og borða hollustu. Ég hef mikið fyrir því að vera stælt," sagði Kelly.

„Ég lyfti lóðum þrisvar í viku og brenni þess á milli. Það virkar vel á minn líkama og ég er stolt af árangrinum sem ég hef náð."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.