Ánægðastur þegar fólk heldur að ég sé klósettvörðurinn heida@frettabladid.is skrifar 2. júlí 2010 15:30 Jóhannes Viðar Bjarnason hefur upphafið víkingamenninguna á Íslandi. Fréttablaðið/Arnþór
Fjörukráin í Hafnarfirði fagnar 20 ára afmæli í sumar. Byggingarnar sem hýsa veitingastaðinn voru reistar árið 1841 og hafa hýst ýmiss konar starfsemi en um tíma var þar verslun og pakkhús. Árið 1985 stóð til að rífa húsið en húsafriðunarnefnd mælti gegn því. Húsið var þá endurbyggt og árið 1990 opnaði Jóhannes Viðar Bjarnason þar veitingastaðinn Fjörukrána. „Ég var alltaf ákveðinn í því að búa til íslenskan veitingastað og var búin að ganga með hugmyndina í maganum í nokkur ár. Ég rak veitingastaði fyrir aðra um einhvern tíma en það vildi enginn leyfa mér að prófa þetta," segir Jóhannes en segja má að hann sé frumkvöðull þess að upphefja víkingamenninguna. Íslenskur matur eins og súrmeti, kjötsúpa og harðfiskur hefur frá upphafi verið á matseðli Fjörukráarinnar og eins hefur Jóhannes staðið fyrir víkingahátíðum í 16 ár. Hann fékk þó ekki hljómgrunn fyrir víkingadagskránni alls staðar í byrjun. „Þegar ég kynnti þessar hugmyndir fyrir bæjarstjórum og ráðamönnum vildi enginn taka þátt í þessu, þeir héldu að ég ætlaði að flytja inn mörg hundruð fyllibyttur, gráar fyrir járnum, sem ætluðu sér bara að höggva mann og annan. Það kom auðvitað annað á daginn og menn eru komnir á aðra skoðun í dag. Á fyrstu hátíðunum vorum við að flytja inn um 500 víkinga til landsins en nú er orðinn til fjölmennur hópur íslenskra víkinga. Mjög færir handverksmenn, steinsmiðir, bogaskyttur og útskurðarmenn. Hátíðin í ár var því að megninu til íslenskir víkingar." Jóhannes hefur byggt Fjörukrána upp jafnt og þétt síðustu tvo áratugi og eru nú sæti fyrir um 500 manns á Fjörukránni og Hótel Víking sem Jóhannes rekur einnig við hlið veitingastaðarins. Hann gengur sjálfur í öll störf og kann vel við sig í vinnunni. „Ég er ánægðastur þegar fólk heldur að ég sé klósettvörðurinn, þá veit ég að ég er að vinna vinnuna mína." En er hann efni í herskáan víking sjálfur? „Nei, ef ég hefði verið uppi á víkingatímabilinu væri ég örugglega kokkurinn en ekki í fremstu víglínu að berjast."
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira