Fljúga frá Ástralíu til að sjá Frostrósir 19. nóvember 2010 10:00 Craig Murray og unnusti hans Darryl Brown (t.h) eru miklir nautnabelgir og ferðalangar og setja það ekki fyrir sig að koma alla leið til Íslands til að sjá Frostrósir. „
Við verðum í Noregi um jólin og áramótin en þegar við fréttum af þessum tónleikum fannst okkur lítið tiltökumál að bæta Íslandi á listann,“ segir Ástralinn Craig Murray. Hann hyggst fljúga alla leið til Íslands og vera viðstaddur jólatónleika Frostrósa sem haldnir verða á Akureyri um miðjan næsta mánuð. Murray er að eigin sögn forfallinn Eurovision-aðdáandi og hefur verið allar götur síðan Abba-flokkurinn kom, sá og sigraði árið 1974. Hann ætti því að fá nóg fyrir sinn pening enda troða upp á tónleikunum þrír söngvarar sem eru með slíka reynslu á bakinu: þau Friðrik Ómar, Regína Ósk og Hera Björk. Craig upplýsir að hann hafi notið liðsinnis Heru Bjarkar við að panta sér hótel og miða á tónleikana en hann, ásamt félaga sínum Darryl, ætla einnig að skoða Reykjavík og fara ferðamannaleiðina Þingvellir-Gullfoss-Geysir. Hann viðurkennir að þetta hljómi ekkert sérstaklega rökrétt, að fara frá Ástralíu til Íslands og hlýða þar á jólatónlist, en: „Það kom okkur bara svo stórkostlega á óvart hvað allt er ódýrt á Íslandi, flugið til Akureyrar kostaði nánast ekki neitt.“ Eitthvað sem kemur ekki til af góðu. Craig verður hins vegar ekki sleppt án þess að hann sé spurður út í frammistöðu Heru Bjarkar í Osló sem vakti mikla athygli en fékk ekki mörg stig. „Ég var mjög vonsvikinn með niðurstöðuna, ég hélt í alvöru að hún væri að fara að vinna þessa keppni og trúði því.“ - fgg
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira