Tónleikar Megasar: þrjár stjörnur 26. maí 2010 12:30 Megas lék úrval af lögum sínum í Háskólabíói á mánudagskvöld. Alls stigu tæplega 30 hljóðfæraleikarar og söngvarar á svið með honum. Hér syngur Ágústa Eva Erlendsdóttir með Megasi. Fréttablaðið/Stefán
Gömul lög í nýjum klæðumTónleikar *** Megas Aðför að lögum Háskólabíó 24. maí á Listahátíð í ReykjavíkTónleikar Megasar í Háskólabíói á mánudagskvöldið voru hans fyrstu á Listahátíð í Reykjavík. Undanfarin ár hafa popptónlistarmenn notfært sér tónleika sína á hátíðinni til að gera eitthvað öðruvísi og tónleikar Megasar voru engin undantekning þar á.Eins og yfirskrift tónleikanna, Aðför að lögum, gaf fyrirheit um voru útsetningarnar margar mikið breyttar og lagalistinn samanstóð aðallega af minna þekktum lögum frá ferli Megasar. Tónleikarnir stóðu í þrjá klukkutíma og tæplega 30 hljóðfæraleikarar og söngvarar komu við sögu.Dagskránni var skipt í afmarkaða kafla sem voru mjög ólíkir innbyrðis. Þeir hófust af krafti með háværri rokkkeyrslu. Fyrst kom Skutullinn af fyrstu plötu Megasar, svo kom Ég get líka af Þrem blóðdropum og svo hvert lagið á fætur öðru. Þegar röðin kom að Pækluðum plómum var rafmagnshljóðfærunum skipt út fyrir kontrabassa og kassagítara og fiðluleikari bættist í hópinn. Sú skipan hélst í nokkur lög og endaði á hápunkti með sérstaklega vel heppnaðri útgáfu af laginu Þyrnirós sem Megas og Ágústa Eva Erlendsdóttir sungu saman.Þá var skipt út og upp á svið komu Karítur Íslands, 13 stúlkna kór, ásamt hörpuleikara og selló-leikara. Kórinn söng ein fimm lög og gerði vel. Í byrjun virtist sem Megas ætlaði að sitja hjá í þessum hluta tónleikanna, en svo heyrðist til hans söngla með og ef vel var að gáð mátti sjá glitta í hann fyrir aftan kórinn. Mjög kómísk uppstilling.Eftir hlé var röðin komin að stengjakvintett sem flutti nýjar útsetningar Þórðar Magnússonar, sonar Megasar, en Megas söng. Þau tóku m.a. Gamla sorrí Grána, Enn (að minnsta kosti) og Jólanáttburð sem inn í var skotið melódíunni úr Vögguvísu á 12. hæð. Skemmtilegar útsetningar. Næst kom kórinn aftur á svið og tók tvö lög með strengjakvintettinum, Silfurskotturnar sungu fyrir mig og Tvær stjörnur. Útsetningin á því síðarnefnda var mjög látlaus og einföld, ólíkt mörgu af því sem á undan kom, en sérstaklega falleg, fyrsta gæsahúð kvöldsins.Næst kom rokkhljómsveitin aftur á svið og tók nokkur lög órafmagnað, m.a. Tímann og Útumholtoghólablús, en svo voru rafmagnshljóðfærin tengd og krafturinn aukinn í síðustu lögunum. Tónleikunum lauk með frábærri útgáfu af Hvellgeira af Drögum af sjálfsmorði. Gæsahúð númer tvö.Allt í allt voru þetta þrír klukkutímar og 30 lög. Og hvernig tókst svo til?Það er alltaf spennandi að heyra nýjar útsetningar og gaman þegar mikið er lagt í hlutina. Það skapaði samt svolítinn losarabrag að hafa svona ólíkar útsetningar á einum og sömu tónleikunum. Útsetningarnar sjálfar voru misvel heppnaðar og hljómburðurinn var frekar slakur í kraftmestu köflunum, a.m.k. þar sem ég sat. Það var valinn maður í hverju rúmi, en það heyrðist að þetta var frumflutningur. Þarna var ekki á ferð hljómsveit sem var búin að spila til prógrammið. En það er jú eðli málsins samkvæmt.Á heildina litið voru þetta ágætir tónleikar. Ég hef orðið fyrir sterkari upplifun á tónleikum hjá Megasi, en þessir voru áhugaverðir og á köflum stórskemmtilegir.Trausti JúlíussonNiðurstaða: Megas bauð upp á athyglisverða og margrétta tónlistarveislu í Háskólabíói á mánudagskvöldið.
Tengdar fréttir Viðtal við Megas: Eins og hver annar iðnaðarmaður Tónleikar Megasar í Háskólabíói eru stærsta innlenda atriðið á Listahátíð í ár. Megas ræddi við Kolbein Óttarsson Proppé um tónleikana, tíundastökk og lögin sem koma úr djúpinu og eru honum vörn gegn krabbameini í hugsun en verða svo öðrum brúkshlutir. 23. maí 2010 08:00 Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira
Viðtal við Megas: Eins og hver annar iðnaðarmaður Tónleikar Megasar í Háskólabíói eru stærsta innlenda atriðið á Listahátíð í ár. Megas ræddi við Kolbein Óttarsson Proppé um tónleikana, tíundastökk og lögin sem koma úr djúpinu og eru honum vörn gegn krabbameini í hugsun en verða svo öðrum brúkshlutir. 23. maí 2010 08:00