Freddy Krueger: tvær stjörnur Þórarinn Þórarinsson skrifar 29. júní 2010 09:00 Þrátt fyrir öll sín fyrri störf tekst Jackie Earle Haley ekki að blása sama lífi og óhugnaði í Freddy og Englund áður.
Í draumi sérhvers barns…Bíó ** A Nightmare on Elm Street Leikstjóri: Samuel Bayer Aðalhlutverk: Jackie Earle Haley, Rooney Mara, Kyle Gallner, Katie CassidyKyndarinn Freddy Krueger er eitt best heppnaða óféti sem stokkið hefur úr kolli hryllingsgúrúsins Wes Craven. Allir sem komnir eru til vits og ára eiga að vita að Freddy er afmyndaður af brunasárum, afturganga sem á ferlega flottan hanska með hnífum í stað fingra sem hann notar til þess að sálga ungmennum í draumum þeirra. Aðal bömmerinn er svo sá að ef Freddy drepur mann í draumi vaknar maður ekki aftur.Freddy byrjaði að hrella táningana á Álmstræti árið 1984 og hefur á löngum ferli sallað sofandi umgmenni niður í ótal framhaldsmyndum. Hann hefur meira að segja tekist á við Jason Voorhees úr Friday the 13th-bálknum í sérstakri mynd og á tíu ára afmæli Álmstrætis martraðamyndanna árið 1994 gerðist Freddy í meira lagi póst-módernískur, fann sér leið inn í raunveruleikan og fór að hrella fólkið sem gerði fyrstu Elm Street myndina, meðal annars þau Heather Langenkamp og sjálfan Wes Craven.Það má því segja að í raun sé búið að reyna flest til þess að halda Freddy gangandi og græða á þessu harðhenta illfygli. Ef minnið svíkur mig ekki voru fyrsta og fjórða myndin áberandi bestar en restin meira og minna hefðbundið unglingahryllingsrusl. Maður nennti samt alltaf að sitja undir þessu, aðallega vegna þess að Robert Englund var alltaf hress í hlutverki Freddys.Þessi nýja mynd er eiginlega frekar endurvinnsla en endurgerð á fyrstu Freddy-myndinni. Nokkur kunnugleg atriði koma nánast óbreytt fyrir en miklu meira púðri er eytt í sköpunarsögu Freddys en í báðum þessum myndum drepur hann í svefni krakka foreldra sem brenndu hann lifandi nokkrum árum áður. Í hugum foreldranna, sem tóku lögin í eigin hendur, var Freddy fyrst og fremst barnamorðingi fyrir 26 árum. Nú er ofuráhersla lögð á Freddy sem barnaníðing sem á skilið að brenna. Því má segja að valið á leikaranum í hlutverk Freddys að þessu sinni sé nokkuð sjálfsgat. Jackie Earle Haley lék barnaníðing af óhugnanlegu næmi í Little Children fyrir fjórum árum og þar fyrir utan var hann hörkufínn sem Rorschach í Watchmen en þar var hann meira og minna hulinn grímu eins og í þessu tilfelli.Þrátt fyrir öll sín fyrri störf tekst Haley ekki að blása sama lífi og óhugnaði í Freddy og Englund áður. Haley er vitaskuld miklu, miklu betri leikari en Englund en vantar allan húmor og galsa sem Englund hafði. Haley er vitaskuld fínn í þeim atriðum þar sem Freddy tælir börn áður en hann verður að martraðarskrímsli en missir tökin þegar hann fer í röndóttu peysuna.Leikstjórinn klúðrar svo því sem eftir er, myndin nær hvorki upp óhugnaði né spennu og draumadrápin eru allt of snyrtileg miðað við hryllingskröfur vorra tíma.Þeir sem vilja kynnast Freddy af einhverju viti ættu að leita Freddy uppi á betri myndbandaleigum þar sem hér er ekki dregin upp rétt mynd af þessu hryllingsíkoni.Þórarinn ÞórarinssonNiðurstaða: Máttlaus unglingahrollur sem virkar í besta falli fyrir 14 ára krakka á fyrsta stefnumóti. Hér er gert heldur lítið úr áhrifamætti Freddys Krueger sem á betra skilið. Hér hefði verið hægt að gera fínan hroll en tækifærinu er klúðrað.
Mest lesið Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Lífið Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Lífið „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Lífið Djammaði með feðgunum Kára og Agli Lífið Sækir um skilnað frá Schneider Bíó og sjónvarp Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Tónlist Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry Lífið Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Lífið Ólafur Darri verður Þór Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“